Skip to main content

Ráðstefna: Veirur, varnir og viðbrögð: Heilbrigði þjóðar og samfélags - streymi í boði

Ráðstefna: Veirur, varnir og viðbrögð: Heilbrigði þjóðar og samfélags - streymi í boði - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
21. ágúst 2020 14:30 til 17:00
Hvar 

Háskólatorg

102

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Félag stjórnmálafræðinga og Félagsfræðingafélag Íslands standa saman fyrir ráðstefnu í samstarfi við Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála þann 21.ágúst 2020. Kynntar verða nýjar rannsóknir á sviði félagsvísinda um afleiðingar kóvid á íslenskt samfélag, og stendur dagskráin frá kl.14:30 til 17:00, í stofu 102 í HT (Háskólatorg) í Háskóla Íslands. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.

Athugið að vegna fjöldatakmarkanna verður einungis hægt að taka á móti, ásamt fyrirlesurunum, 60 manns í HT102. Ráðstefnugestir eru því beðnir um að skrá sig á viðburðinn ætli þeir sér að mæta með því að senda tölvupóst til Evu H.Önnudóttur, eho@hi.is. Viðburðinum verður jafnframt streymt á netinu.

Smellið HÉR fyrir Facebook síðu viðburðarins.

Flutt verða fjögur erindi:

Kófið, fjölskyldan og kynin.
Auður Magndís Auðardóttir, aðjúnkt á menntavísindasviði HÍ og Annadís Greta Rúdólfsdóttir, dósent í menntavísindum.

Í erindinu verður sagt frá niðurstöðum rannsóknar sem fram fór á vormánuðum 2020 þegar hvað mestar takmarkanir voru á samkomum og skólahaldi hérlendis vegna COVID-19 heimsfaraldursins. Gögnum var safnað með sögulokaaðferð (story-completion method) en alls söfnuðust 97 sögur. Rannsóknin veitir mikilvæga innsýn inn í á hvaða hátt Íslendingar hugsuðu um fjölskyldulíf á tímum strangra samkomutakmarkana. Niðurstöður sýna átök á milli umönnunar og launaðrar vinnu auk núnings þátttakenda, sem einkum voru háskólamenntaðar konur, við hinn hefðbundna föður sem fyrirvinnu. Grein um rannsóknina hefur verið samþykkt til birtingar í Gender, Work and Organization.

„Mér finnst ég hafa breyst í verkstjóra hérna á heimilinu“: Heimilislíf á tímum Covid-19.
Andrea Hjálmarsdóttir, lektor í félagsvísindum, og Valgerður S. Bjarnadóttir, nýdoktor í félagsvísindum.

Erindið byggir á dagbókarrannsókn um áhrif COVID-19 faraldursins á heimilislíf, heimilisstörf og umönnun barna. Skerðingar á leik- og grunnskólastarfi, lokanir framhaldsskóla, háskóla og vinnustaða, auk breytinga á starfsöryggi fólks höfðu víðtæk áhrif á daglegt líf þátttakenda. Niðurstöður benda sterklega til þess að ástandið hafi dregið fram og jafnvel ýkt kynjaða verkaskiptingu innan heimilisins, þar sem mæður lýstu því hvernig þær báru hitann og þungann af verkstjórn og ábyrgð á heimilisstörfum sem og umönnun og líðan barna.

Covid og kynjajafnrétti: Umönnun og atvinnuþátttaka foreldra vor 2020.
Guðný Björk Eydal, prófessor í félagsráðgjöf, Ingólfur V. Gíslason, prófessor í félagsfræði, og Tómas Björn Bjarnason, sviðsstjóri markaðsrannsókna hjá Gallup.

Í erindinu verða kynntar fyrstu niðurstöður úr fjölþjóðlegri rannsókn sem var hrint úr vör að frumkvæði Utrecht háskólans undir yfirskriftinni „Gender (In)equality in Times of Covid-19. Byggt á spurningakönnun sem var framkvæmd af Gallup á Íslandi verður fjallað um hvernig viðbrögð stjórnvalda og vinnumarkaðar hafði áhrif á stöðu feðra og mæðra, innan og utan heimila. Meðal annars var spurt um aðstæður til heimavinnu og skiptingu heimilisstarfa, umhyggju barna, og samkomulag og ágreining í parasamböndum hvað varðar breyttar aðstæður.

Fjöldahegðun í heimsfaraldri.
Jón Gunnar Bernburg, prófessor í félagsfræði, Sigrún Ólafsdóttir, prófessor í félagsfræði, Magnús Torfason, dósent í viðskiptafræði, og Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, forstöðumaður Félagsvísindastofnunar HÍ.

Kynntar verða niðurstöður úr könnun, framkvæmd af Félagsvísindastofnun HÍ, á þátttöku almennings í sóttvarnaraðgerðum þegar fyrsta bylgja COVID-19 faraldursins stóð sem hæst. Niðurstöður sýna að þeir sem mestar áhyggjur höfðu af faraldrinum voru líklegri til þess að hlýða tilmælum. Þess fyrir utan tengist þátttaka einstaklinga félagslegum þáttum á borð við kyn, aldur, menntun, vinnuaðstæður og félagsleg tengsl. Sérstaka athygli vekur að þegar faraldurinn stóð sem hæst voru væntingar um það að sóttvarnaraðgerðir myndu á endanum skila góðum árangri afar útbreiddar meðal almennings. Þessi staða virðist hafa aukið þátttöku almennings; enda kemur í ljós að þeir sem höfðu slíkar væntingar voru líklegri til þess að hlýða tilmælum. Niðurstöður verða túlkaðar í ljósi þess hvernig sóttvarnaraðgerðir birtust almenningi hérlendis.

Í lok fundarins mun Félag stjórnmálafræðinga veita verðlaun fyrir framúrskarandi lokaritgerðir í stjórnmálafræði (BA og MA stig eða sambærilegt) sem var skilað á árinu 2019.

Félag stjórnmálafræðinga og Félagsfræðingafélag Íslands standa saman fyrir ráðstefnu í samstarfi við Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála þann 21.ágúst 2020. Kynntar verða nýjar rannsóknir á sviði félagsvísinda um afleiðingar kóvid á íslenskt samfélag, og stendur dagskráin frá kl.14:30 til 17:00, í stofu 102 í HT (Háskólatorg) í Háskóla Íslands - skráning nauðsynleg. Streymt verður frá fundinum.

Ráðstefna: Veirur, varnir og viðbrögð: Heilbrigði þjóðar og samfélags - streymi í boði