Útskriftarráðstefna tómstunda- og félagsmálafræðinema

Stakkahlíð / Háteigsvegur
Árlega standa nemendur í tómstunda- og félagsmálafræði fyrir útskriftarráðstefnu þar sem þeir kynna lokaverkefni sín á bakkalárstigi.
Viðfangsefni nemenda sem ljúka námi vorið 2020 eru afar fjölbreytt, sem dæmi má nefna kynfræðslu, upplifun þátttakenda Stelpur rokka!, huglæg velferð ungmenna, spunaspil sem hópefli, úti- og ævintýranám í frístundastarfi, áhrif tómstunda á þunglyndi og einmanaleika á efri árum, leiðtogar og núvitund, saga og þróun Mýrarboltans, frítímatengd verkefni í landsliðsverkefnum KSÍ og félagsleg áhrif rafíþróttaspilunar.
Ráðstefnan fer fram í Stakkahlíð og stendur frá 9.00-16.00
Útskriftarnemendur í tómstunda- og félagsmálafræði kynna lokaverkefni sín á bakkalárstigi. Meðal viðfangsefna eru huglæg velferð ungmenna, úti- og ævintýranám, áhrif tómstunda á þunglyndi á efri árum, saga og þróun Mýrarboltans og upplifun þátttakenda í Stelpur rokka!
