Skip to main content

Frá ofurtölvum til FAIR gagna

Frá ofurtölvum til FAIR gagna - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
17. apríl 2020 12:20 til 13:00
Hvar 
Nánar 
Aðgangur ókeypis

Dr. Helmut Neukirchen, prófessor í tölvunarfræði við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild flytur erindið Frá ofurtölvum til FAIR gagna á málstofu á vegum Verkfræðistofnunar Háskóla Íslands.

Samkvæmt lögmáli Moores tvöfaldast fjöldi smára í örgjörvum á um tveggja ára fresti og þar með hraði tölva. Blikur eru þó á lofti að þetta lögmál muni ekki verða nothæft á komandi árum þar sem framleiðendur örgjörva eru byrjaðir að reka sig á eðlisfræðilögmál sem þeir ráða hreinlega ekki við. Þetta hefur leitt till breyttrar hönnunar þar sem hraðlar gera kleift að nota marga örsmáa innri örgjörva (GPUs) og skapa þar með ofurtölvur eða jafnvel skammtatölvur.

Á málstofunni mun annarsvegar verða fjallað um niðurstöður DEEP-EST verkefnisins þar sem markmiðið er að þróa framtíðar ofurtölvur og hinsvegar EOSC verkefnisins þar sem þróuð hefur verið þjónusta þar sem hægt er að nálgast FAIR gögn (finnanleg, aðgengileg, samvirk, og endurnýtanleg)

Vegna samkomubanns og COVID-19 verður streymt verður frá viðburðinum á slóðinni https://eu01web.zoom.us/j/69647434791

Dr. Helmut Neukirchen

Frá ofurtölvum til FAIR gagna