Skip to main content

Fjarkynning í framhaldsnámi við Deild faggreinakennslu

Fjarkynning í framhaldsnámi við Deild faggreinakennslu - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
20. apríl 2020 10:30 til 13:30
Nánar 
Aðgangur ókeypis

Framhaldsnámsleiðir við Deild faggreinakennslu verða kynntar í streymi föstudaginn 20.apríl kl. 10:30-13:30. Umsóknarfrestur um framhaldsnám við Háskóla Íslands hefur verið framlengdur til 20. maí (sjá umsóknarsíðu hi.is).

Á fjarkynningunum verða veittar upplýsingar um samsetningu hverrar námsleiðar, inntökuskilyrði, fyrirkomulag lokaverkefna, atvinnumöguleika og margt fleira. Þá verður hægt að senda inn spurningar í netspjalli um leið og kynningin fer fram.

Til að horfa á námskynningu smellið á Fjarkynningu við viðeigandi námskynningu og þá opnast streymið á netinu.

Dagskrá námskynninga Deildar faggreinakennslu 20.apríl:

TÍMI       KYNNING

11:00              Kennsla íslensku og erlendra tungumála í grunnskóla / Fjarkynning

11:20              Kennsla stærðfræði og náttúrugreina í grunnskóla / Fjarkynning

12:00              Kennsla list- og verkgreina í grunnskóla / Fjarkynning

12:40              Kennsla upplýsingatækni og miðlunar í grunnskóla / Fjarkynning

13:00              Kennsla samfélagsgreina í grunnskóla / Fjarkynning

13:20              Viltu verða framhaldsskólakennari? / Fjarkynning