Skip to main content

Fjarkynning í framhaldsnámi við Deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda

Fjarkynning í framhaldsnámi við Deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
20. apríl 2020 11:40 til 14:10
Hvar 
Nánar 
Aðgangur ókeypis

Framhaldsnámsleiðir við Deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda verða kynntar í streymi föstudaginn 20.apríl kl. 11:40-14:10. Umsóknarfrestur um framhaldsnám við Háskóla Íslands hefur verið framlengdur til 20. maí (sjá umsóknarsíðu hi.is).

Á fjarkynningunum verða veittar upplýsingar um samsetningu hverrar námsleiðar, inntökuskilyrði, fyrirkomulag lokaverkefna, atvinnumöguleika og margt fleira. Þá verður hægt að senda inn spurningar í netspjalli um leið og kynningin fer fram.

Til að horfa á námskynningu smellið á Fjarkynningu við viðeigandi námskynningu og þá opnast streymið á netinu.

Dagskrá námskynningar Deildar heilsueflingar, íþrótta og tómstunda 20.apríl:

TÍMI       KYNNING

11:40              Heilsuefling og heimilisfræði / Fjarkynning

13:40              Tómstunda- og félagsmálafræði / Fjarkynning

14:00              Hagnýt atferlisgreining - Þverfaglegt nám / Fjarkynning