Fjarkynning á framhaldsnámi við Íslensku- og menningardeild

Hvenær
17. apríl 2020 9:00 til 11:30
Nánar
Aðgangur ókeypis
Framhaldsnámsleiðir við Íslensku- og menningardeild verða kynntar í streymi föstudaginn 17. apríl kl. 9:00-11:30. Umsóknarfrestur um framhaldsnám við Háskóla Íslands hefur verið framlengdur til 20. maí (sjá umsóknarsíðu hi.is).
Á fjarkynningunum verða veittar upplýsingar um samsetningu hverrar námsleiðar, inntökuskilyrði, fyrirkomulag lokaverkefna, atvinnumöguleika og margt fleira. Þá verður hægt að senda inn spurningar í netspjalli um leið og kynningin fer fram.
Dagskrá námskynningar Íslensku- og menningardeildar 17. apríl:
- 09:00 Almenn bókmenntafræði / Fjarkynning
- 09:20 Almenn málvísindi / Fjarkynning
- 09:40 Hagnýt ritstjórn og útgáfa / Fjarkynning
- 10:00 Íslenska og máltækni / Fjarkynning
- 10:20 Listfræði / Fjarkynning
- 10:40 Þýðingafræði / Fjarkynning
- 11:00 Ritlist / Fjarkynning
- 11:20 Menningarfræði / Fjarkynning