Efnahagstengsl Kína og ESB - áhrif frumkvæðanna „Belti og braut“ og tengslastefnu ESB

Hvenær
11. mars 2020 12:00 til 13:10
Hvar
Veröld - Hús Vigdísar
Stofa 201
Nánar
Aðgangur ókeypis
Konfúsíusarstofnun og Alþjóðamálastofnun standa að fyrirlestri sem fer fram á Heimasvæði tungumála á 2.hæð í Veröld (VHV-201), miðvikudaginn 11. mars kl.12:00-13:10. Fyrirlesturinn er fluttur á ensku. Verið öll velkomin.
Belti og braut (Belt and Road Inititative) og tengslastefna ESB gagnvart Asíu eru frumkvæði Kína og ESB til efnahagslegrar þátttöku á 21.öldinni og endurspegla tvær ólíkar áætlanir til að móta framtíð efnahagslegrar velmegunar í Evrasíu og víðar.
Constantin Holzer lauk doktorsprófi í hagfræði frá Renmin háskóla í Kína og gegnir stöðu lektors í kínverskum viðskiptum við University College Cork.
Constantin Holzer.
