Úr djúpinu – Háskólatónleikar 11. mars - Frestað

Hvenær
11. mars 2020 12:30 til 13:00
Hvar
Aðalbygging
Kapella
Nánar
Aðgangur ókeypis
Úr djúpinu er samleikur tveggja „djúpra“ hljóðfæra þar sem kannaðar eru ótroðnar slóðir dúó formsins með tilheyrandi frjálsleika og fagurheitum. Sigmar Þór Matthíasson, bassi, og Snorri Heimisson, fagott, flytja sex verk eftir Sigmar Þór. Þrjú verkanna verða frumflutt á tónleikunum.
Tónleikarnir eru í kapellunni í Aðalbyggingu Háskóla Íslands miðvikudaginn 11. mars og hefjast kl. 12.30.
Enginn aðgangseyrir er að tónleikunum og öll eru velkomin.
Sigmar Þór Matthíasson, bassi, og Snorri Heimisson, fagott, flytja sex verk eftir Sigmar Þór á Háskólatónleikum 11. mars.
