Hin „fimm trúarbrögð“ í Kína á öndverðri 20. öld

Veröld - Hús Vigdísar
Heimasvæði tungumála, 2. hæð
Guoxiang Peng, prófessor í kínverskri heimspeki, menningarsögu og trúarbrögðum flytur fyrirlestur á vegum Konfúsíusarstofnunar og Guðfræðistofnunar um hin „fimm trúarbrögð“ í Kína. Hann gegnir rannsóknarstöðu við Wissenschaftskolleg í Berlín.
Fyrirlesturinn fer fram á Heimasvæði tungumála á 2.hæð í Veröld, föstudaginn 6. mars kl. 12:00-13:10 og er fluttur á ensku.
Hin svonefnda „sanjiao 三教 hefð (þrjár kenningar/trúarbrögð)” sem samanstendur af konfúsíanisma, daóisma og búddisma hefur löngum verið álitin hin „ kínversku trúarbrögð” í sögu Kína. Til viðbótar við „sanjiao” mætti einnig telja kristni og íslam sem urðu snemma hluti af kínverskri trúarhefð. Snemma á 20. öld var hugtakið og iðkun „wujiao 五教 (fimm kenningar/trúarbrögð)” fremur en „sanjiao” víða viðurkennt af Kínverjum. Í fyrirlestrinum er sýnt fram á að hugtakið og umfjöllun á iðkun „wujiao“ veita betra sjónarhorn en „sanjiao” til skilnings á kínverskri trúarhefð.
PENG Guoxiang 彭國翔 er prófessor í kínverskri heimspeki, menningarsögu og trúarbrögðum við Zhejiang-háskóla í Kína og gegnir sem stendur tímabundinni rannsóknarstöðu við Wissenschaftskolleg í Berlín. Á ferli sínum hefur hann m.a. hlotið styrk Kluge Chair in Countries and Cultures of the North (Library of Congress, USA) árið 2016 og starfað við fjölda háskóla og stofnana, þ.á.m. sem prófessor við Peking-háskóla. Meðal fjölmargra útgefinna verka hans eru Confucian Tradition: Between Religion and Humanism (2007, 2017) og fjöldi greina.
Guoxiang Peng, prófessor í kínverskri heimspeki, menningarsögu og trúarbrögðum flytur fyrirlestur á vegum Konfúsíusarstofnunar og Guðfræðistofnunar um hin „fimm trúarbrögð“ í Kína. Hann gegnir rannsóknarstöðu við Wissenschaftskolleg í Berlín.
