Grænir dagar - fjölbreytt dagskrá

Háskólatorg
Litla-torg
Grænir dagar fara fram í Háskóla Íslands dagana 2. - 6. mars. Þema ársins er aktívismi og að finna lausnir við loftslagsvánni og fjölmargir viðburðir eru á dagskránni, svo sem fyrirlestrar, markaðir og kvikmyndir tengdir umhverfismálum. Grænir dagar 2020 eru skipulagðir af Gaia Iceland nemendafélagi meistaranema í Umhverfis- og auðlindafræði, í samvinnu við Umhverfis- og samgöngunefnd Stúdentaráðs Háskóla Íslands.
Í dag eru sex viðburðir á dagskrá á Grænum dögum.
- kl. 10:00-11:30: Siðfræði og hamfarahlýnun - Litla-torg
- kl. 14:30-15:00: Hvernig nýtist menntunin frá HÍ við að leysa loftslagsvandann? - Veröld (stofa 023)
- kl. 15:00-15:30: Votlendissjóður - Veröld (stofa 023)
- kl. 15:30-16:00: Meistaranám í umhverfis- og auðlindafræði - Veröld (stofa 023)
- kl. 16:40-17:30: Umhverfissálfræði - fræðsluganga - Veröld (stofa 023)
- kl. 18:00-20:00: Slow-food kvöldverður - Bergsson Mathús
Heildardagskrá Grænna daga má finna á Facebook.