Ein mynd segir meira en þúsund orð

Veröld - Hús Vigdísar
vhv023
Gunnella Þorgeirsdóttir, lektor í japönsku við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands flytur fyrirlesturin Ein mynd segir meira en þúsund orð, þann 10. mars kl. 16:30 í fyrirlestrarsal Veraldar - húss Vigdísar.
Eitt það tjáningaform sem sjaldan er fjallað um þegar litið er til tungumála, er myndmálið. Þó að myndmál skipi kannski lítinn sess og sé oftar en ekki upplifað sem aukaefni, eiginlega óþörf viðbót, til að mynda mynd á vefsíðu, skrítla í dagblaði, mynd með grein eða brostjákn í snarskeyti, þá krefst það samt sem áður ákveðins læsis, læsis sem er ekki endilega það sama á milli hópa. Í fyrirlestrinum mun vera rætt um almennt myndlæsi, væntingar til myndefnis og meðvitaða notkun þess í vefmiðlum.
Þriðjudagsfyrirlestrar Vigdísarstofnunar
Ein mynd segir meira en þúsund orð
