Síðasta sort? – Truflandi tilvist fatlaðra og langveikra kvenna

Litla Torg
Á þessu málþingi munu fatlaðar og langveikar konur búsettar á Íslandi deila reynslu sinni af því að sækja sér framhaldsmenntun og vera/vera ekki á vinnumarkaði. Þær munu í erindum sínum velta fyrir sér ábyrgð háskólasamfélagsins við að koma í veg fyrir mismunun með tilliti til menntunar og hvernig háskólasamfélaginu ber skylda til þess að hafa mótandi áhrif á vinnumarkaðinn á þann hátt að þar hafi allir sömu tækifæri. Þá verður einnig velt upp spurningum á borð við; Hver er tilgangurinn með því að mennta sig fyrir íhaldssaman vinnumarkað sem vill ekki ráða fatlaðar og langveikar konur? Hvernig umbyltum við vinnumarkaðnum þannig að megnið af orku fatlaðra og langveikra kvenna fara ekki í að verjast fordómum, mismunun og endalausum hindrunum í starfi? Hvernig stuðlum við að samfélagi þar sem ófötluðu fólki stafar ekki ógn af áhrifum og auknu valdi fatlaðra og langveikra kvenna?
Fyrirlesarar eru:
Elín Ýr Arnar Hafdísardóttir, Fötluð, feminisk kona, móðir og þroskaþjálfi með kerfisusla
Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir, Listamaður og fötlunarlistarkona, nemi á Sviðshöfundabraut við Listaháskóla Íslands, með BA í þroskaþjálfafræði og diplómagráðu í fötlunarfræði.
Lára Þorsteinsdóttir, tónlistarkona, leiðbeinandi á leikskóla og hefur lokið framhaldskóla og námi í lýðháskólanum Lunga
María Hreiðarsdóttir,
Nanna Hlín Halldórsdóttir, nýdoktor í heimspeki og ME/síþreytu sjúklingur
Sigríður Jónsdóttir, viðskiptafræðingur, með viðbótardiplómu í hagnýtri jafnréttisfræði og Tabúkona
Fundarstýra er Freyja Haraldsdóttir.