PISA í hnotskurn — Greining á stöðu lesskilnings

Stakkahlíð / Háteigsvegur
H207
PISA í hnotskurn – Staða íslenskra nemenda í alþjóðlegum samanburði er heiti á fundaröð sem hefur göngu sína þann 3. febrúar og lýkur 9. mars næstkomandi. Haldnir verða alls fjórir fundir á vegum Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, Menntamálastofnunar og Kennarasambands Íslands þar sem markmiðið er að kafa dýpra í niðurstöður PISA-rannsóknarinnar 2018.
Fundirnir verða haldnir á mánudögum kl. 15.00-16.30 í stofu H207 í húsakynnum Menntavísindasviðs við Stakkahlíð.
Dagskráin er sem hér segir:
Mánudagur 3. febrúar
Greining á stöðu lesskilnings
- Guðmundur Bjarki Þorgrímsson, sérfræðingur við Menntamálastofnun
- Sigríður Ólafsdóttir, lektor og Baldur Sigurðsson, dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
- Sigurrós Eiðsdóttir, íslenskukennari í Réttarholtsskóla
Mánudagur 17. febrúar
Greining á stöðu læsis á náttúruvísindi
- Guðmundur Bjarki Þorgrímsson, sérfræðingur við Menntamálastofnun
- Auður Pálsdóttir, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
Mánudagur 2. mars
Greining á stöðu læsis á stærðfræði
- Guðmundur Bjarki Þorgrímsson, sérfræðingur við Menntamálastofnun
- Freyja Hreinsdóttir, dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
Mánudagur 9. mars.
PISA- og hvað svo?
- Ragnar Þór Pétursson, formaður Kennarasambands Íslands
- Grunnskólinn: Áskoranir og tækifæri
- Anna Kristín Sigurðardóttir, prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
Öll velkomin meðan húsrúm leyfir.
Fundunum verður streymt.
Um PISA
Menntamálastofnun sá um framkvæmd PISA-rannsóknarinnar sem lögð var fyrir alla nemendur í 10. bekk vorið 2018. Samstarf hefur verið milli Menntavísindasviðs og Menntamálastofnunar um greiningu gagnanna og túlkun niðurstaðanna.
PISA-rannsóknin er lögð fyrir í 72 löndum um heim allan. Könnuð er frammistaða nemenda í stærðfræðilæsi, lesskilningi og náttúrulæsi. Könnunin er framkvæmd á þriggja ára fresti og gefur vísbendingar um breytingar á frammistöðu nemenda yfir tíma ásamt því að meta stöðu þeirra við lok skyldunáms.
PISA í hnotskurn – Staða íslenskra nemenda í alþjóðlegum samanburði er heiti á fundaröð sem hefur göngu sína þann 3. febrúar og lýkur 9. mars næstkomandi.