Ættleidd frá Kína
Hvenær
16. janúar 2020 17:30 til 18:30
Hvar
Veröld - Hús Vigdísar
Stofa 007
Nánar
Aðgangur ókeypis
Hrafnhildur Ming Þórunnardóttir er á öðru ári í Kvennó. Hún er ættleidd frá Kína og hefur búið á Íslandi frá því hún var 14 mánaða. Hún fjallar um sína upplifun af uppvexti á Íslandi með annað útlit og bakgrunn en flestir. Hún lýsir einnig ferð þeirra mæðgna aftur til Kína árið 2011, að heimsækja gamlar slóðir.
Fyrirlesturinn verður haldinn í Veröld, stofu 007, þann 16. janúar kl. 17:30.
Verið öll velkomin.
Hrafnhildur Ming Þórunnardóttir.