Skip to main content

Atvinnudagar 2020 - Fáðu uppskrift að starfsframanum

Atvinnudagar 2020 - Fáðu uppskrift að starfsframanum - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
13. janúar 2020 13:30 til 17. janúar 2020 18:00
Hvar 

Háskólatorg

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Náms- og starfsráðgjöf Háskóla Íslands (NSHÍ) og Fjármála- og atvinnulífsnefnd Stúdentaráðs Háskóla Íslands standa sameiginlega, í annað sinn, að Atvinnudögum . Þar verða í boði fjölbreyttir fyrirlestrar og viðburðir fyrir nemendur um það hvernig best er að undirbúa sig fyrir og komast inn á vinnumarkaðinn.

,,Hver er uppskriftini að starfsframa?” spyrja stúdentar sérstaklega þegar kemur að því að undirbúa framtíðarstarfsferil.  Leitað verður svara við þessari spurningu með spennandi fyrirlestrum og fræðslu frá sérfræðingum úr atvinnulífinu ásamt heimsóknum til valinna fyrirtækja og stofnana.

Nánari upplýsingar:

Vefsíða NSHÍ: www.hi.is/nshi

Facebook síða: @nshiradgjof

Instagram: namsradgjofhi 

Frá menntun til atvinnulífs - skrefið tekið

Atvinnudagar 2020 - Fáðu uppskrift að starfsframanum