Skip to main content

Í fararbroddi: Rannsóknir í hjúkrunar- og ljósmóðurfræði

Í fararbroddi: Rannsóknir í hjúkrunar- og ljósmóðurfræði - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
16. janúar 2020 8:30 til 16:00
Hvar 

Stakkahlíð / Háteigsvegur

Skriða

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Ráðstefnan Í fararbroddi: Rannsóknir í hjúkrunar- og ljósmóðurfræði verður haldin í fjórða sinn þann 16. janúar 2020.

Ráðstefnan er haldin á vegum Hjúkrunarfræðideildar Háskóla Íslands en efnt var til ráðstefnunnar í minningu Guðrúnar Marteinsdóttur, dósents við Námsbraut í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands. Guðrún var aðeins 42 ára gömul þegar hún lést árið 1994 en hafði þá þegar skipað sér sess sem frumkvöðull í hjúkrunarkennslu, heilsuvernd og heilsugæslu á Íslandi.  Ráðstefnan er haldin til að heiðra minningu Guðrúnar og til að halda hugsjónum hennar á lofti.   

Ágrip

Ágrip fyrir erindi og veggspjöld skulu að hámarki vera 250 orð og skal skipta efninu niður í : 

  • Inngang
  • Aðferð
  • Niðurstöður/meginmál
  • Ályktanir

Auk þess skal skila að hámarki 5 lykilorðum.

Vinsamlegast sendið ágrip á hjukrun@hi.is eigi síðar en 1. desember 2019 og merkið "Ráðstefna - Í fararbroddi"

Erindi 

Áætlaður tími fyrir hvert erindi er 15 mínútur, þar af 5 mínútur í umræður.

Ekkert þátttökugjald er á ráðstefnuna en skráning er skilyrði. Vinsamlegast skráið ykkur hér.

Sóley Sesselja Bender, er formaður undirbúningsnefndar.