Í fararbroddi: Rannsóknir í hjúkrunar- og ljósmóðurfræði

Stakkahlíð / Háteigsvegur
Skriða
Ráðstefnan Í fararbroddi: Rannsóknir í hjúkrunar- og ljósmóðurfræði verður haldin í fjórða sinn þann 16. janúar 2020.
Ráðstefnan er haldin á vegum Hjúkrunarfræðideildar Háskóla Íslands en efnt var til ráðstefnunnar í minningu Guðrúnar Marteinsdóttur, dósents við Námsbraut í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands. Guðrún var aðeins 42 ára gömul þegar hún lést árið 1994 en hafði þá þegar skipað sér sess sem frumkvöðull í hjúkrunarkennslu, heilsuvernd og heilsugæslu á Íslandi. Ráðstefnan er haldin til að heiðra minningu Guðrúnar og til að halda hugsjónum hennar á lofti.
Ágrip
Ágrip fyrir erindi og veggspjöld skulu að hámarki vera 250 orð og skal skipta efninu niður í :
- Inngang
- Aðferð
- Niðurstöður/meginmál
- Ályktanir
Auk þess skal skila að hámarki 5 lykilorðum.
Vinsamlegast sendið ágrip á hjukrun@hi.is eigi síðar en 1. desember 2019 og merkið "Ráðstefna - Í fararbroddi"
Erindi
Áætlaður tími fyrir hvert erindi er 15 mínútur, þar af 5 mínútur í umræður.
Ekkert þátttökugjald er á ráðstefnuna en skráning er skilyrði. Vinsamlegast skráið ykkur hér.
Sóley Sesselja Bender, er formaður undirbúningsnefndar.