Meistaranemar kynna lokaverkefni á málþingi
Fjölbreyttar rannsóknir á sviði menntavísinda verða kynntar á málþingi meistaranema sem fram fer í Háskóla Íslands 1. október nk. frá kl. 13-17. Þar munu M.Ed.- og MA-nemar sem útskrifast í október flytja stuttar kynningar á lokaverkefnum sínum í tólf málstofum.
Meðal þess sem fjallað verður um eru lýðræðislegar kennsluaðferðir sem bæta hegðun og líðan nemenda, barnabók Drekinn í þinghúsinu og námsheimsókn yngri barna á Alþingi, smáforrit sem henta í stærðfræðikennslu, námsspil í lífsleikni, birtingarmyndir vímuefna í íslenskri rapptónlist, vanlíðan drengja á skólagöngu og ýmis önnur málefni leik-, grunn- og framhaldsskóla.
Mikill vöxtur hefur verið í framhaldsnámi við Menntavísindasvið undanfarin ár en sviðið menntar kennara fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla, uppeldis- og menntunarfræðinga, íþrótta- og heilsufræðinga, tómstunda- og félagsmálafræðinga og þroskaþjálfa.
Ókeypis er á málþingið og er það öllum opið.