Skip to main content

Leiðbeiningar fyrir rafhjól HÍ

Við upphaf leigu

  1. Læsið rafhlöðu fasta á hjólið, mikilvægt!
  2. Keikið á rafhlöðu
  3. Kveikið á hraðamæli, getur þurft að halda takka inni í nokkrar sek
  4. Hafið rafhjálp stillta í 0 í upphafi og enda hjólreiðatúrs. Ef hjálpin er á, og þú rekur þig í pedalana eftir að þú ert stiginn af baki, getur það spólað af stað
  5. Á áfangastað: Læsa þarf hjólinu við eitthvað, gott ef það er hjólagrind

Við skil

  1. Læsa þarf hjólinu við heimastæðið
  2. Hver er hleðsla hjólsins? Ef rafhlaða sýnir minna en 60% hleðslu þarf að láta vita svo rafhlaðan verði sett í hleðslu
  3. Slökkvið á hraðamæli
  4. Slökkvið á rafhlöðu (halda takka inni í nokkrar sek þar til ljós slokkna)
  5. Skilið rafhlöðu og lyklum á upplýsingaborði Aðalbyggingar auk annara fylgihluta ef við á, hjálmur, vesti, taska

Notkunarupplýsingar

  • Bremsur: tvær handbremsur
  • Litlu gírarnir: stilltir hægra megin, hækkar gír með gráum plústakka, lækkar gír með svarta flipanum
  • Stóru gírarnir: stilltir vinstra megin á snúningsgæja
  • Framlukt: kveikt er með takka ofan á luktinni, hægt að stilla ljós blikkandi eða stöðugt
  • Afturlukt: kveikt er með því að þrýsta á ljósröndina, hægt að stilla ljós blikkandi eða stöðugt