Járnkarlarnir kynna kosti leikskólastarfsins
Karlar eru innan við tvö prósent menntaðra leikskólakennara hér á landi og hefur margt verið reynt í gegnum tíðina til að fjölga þeim. Þessi alvarlega staða innan leikskólans varð til þess að Menntavísindasvið Háskóla Íslands, Kennaradeild Háskólans á Akureyri, Samband íslenskra sveitarfélaga, Félag leikskólakennara og Félag stjórnenda leikskóla tóku höndum saman og fóru af stað með verkefni sem er ætlað að vekja athygli ungra karla á starfi leikskólakennara.
Samstarfsaðilarnir hlutu styrk úr Jafnréttissjóði Íslands árið 2016 til að vinna að verkefninu og voru í framhaldinu tveir nemar á meistarastigi í leikskólakennarafræði ráðnir verkefnisstjórar, þeir Eysteinn Sindri Elvarsson og Magnús Hilmar Felixson.
Eysteinn og Magnús hafa haldið úti lifandi kynningum á samfélagsmiðlum undir yfirskriftinni Járnkarlarnir þar sem leikskólastarfið er kynnt á fjölbreyttan hátt.
Þá hafa Járnkarlarnir einnig tekið þátt í kynningum á Háskóladeginum, Háskólaherminum, Starfamessu Norðurlands og í framhaldsskólum. Fyrirhugaðar eru frekari kynningar í efstu bekkjum grunnskóla og í framhaldsskólum.
Áhugasamir geta fylgst með Járnkörlunum á Snapchat, Facebook, Instagram og Twitter.
Sjá nánar: Brýnt að fjölga körlum i yngri barna kennslu og Hlutu styrk til að ljúka námi í leikskólakennarafræði