Skip to main content

Upplýsingatækni í leikskólanum

Svava Pétursdóttir, lektor við Menntavísindasvið

Upplýsingatækni verður sífellt stærri hluti af samfélagi okkar og þar er skólakerfið ekki undanskilið. Innan Menntavísindasviðs Háskóla Íslands eru unnin fjölbreytt rannsóknarverkefni sem miða að því að skoða hvaða gagn er að upplýsingatækni í kennslu og hvaða áhrif hún hefur á skólastarf. Svava Pétursdóttir, lektor í kennslu yngri barna, vinnur með Torfa Hjartarsyni, lektor í kennslufræði og upplýsingafræði, að einu slíku verkefni sem snýr að yngsta skólastiginu.

„Rannsóknin snýst um að bera saman og þróa notkun á spjaldtölvum í leikskólum með áherslu á læsi, samskipti og atbeina barna í leik og námi í samstarfi við leikskóla. Við Torfi og leikskólinn Nóaborg þáðum boð Háskólans í Halmstad í Svíþjóð um að vera með í þessu samnorræna verkefni því ætlunin er að auka hlut upplýsingatækni í menntun kennaraefna,“ segir Svava.

Sjálf vann Svava doktorsverkefni um notkun upplýsingatækni í náttúrufræðikennslu. „Sem lektor í kennslu yngri barna sameinast þarna tvö áhugasvið mín. Upplýsingatækni getur gefið börnum námstækifæri sem eru lítt könnuð og áhugaverð,“ bendir hún á.

„Bæði börnum og starfsfólki gengur vel að ná tökum á þeim og auðvelt er að grípa til þeirra þegar tækifæri gefast. Vinna og verkefni tengd ljósmyndum eru áberandi, bæði í skráningum og foreldrasamstarfi en líka sem vaki að samræðum og málörvun barnanna þar sem þau tjá sig um eigin reynslu heima og á leikskólanum.“

Svava Pétursdóttir

Svava segir mjög misjafnt í hvaða mæli leikskólar nýti upplýsingatækni. „Skólarnir eru misvel tækjum búnir og sumir kennarar hafa efasemdir um það hvaða erindi tækni eigi í leikskólastarf. Aðrir nýta hana markvisst, námi barna og þroska til gagns,“ segir hún.

Spjaldtölvur hafa reynst vel á Nóaborg að sögn Svövu. „Bæði börnum og starfsfólki gengur vel að ná tökum á þeim og auðvelt er að grípa til þeirra þegar tækifæri gefast. Vinna og verkefni tengd ljósmyndum eru áberandi, bæði í skráningum og foreldrasamstarfi en líka sem vaki að samræðum og málörvun barnanna þar sem þau tjá sig um eigin reynslu heima og á leikskólanum,“ segir Svava og bætir við að nemendur noti einnig leiki og kennsluforrit til þjálfunar í læsi og stærðfræði. Hún bendir jafnframt á að starfsmenn geri sér grein fyrir að tæknin sé bara ein leið eða verkfæri í viðbót sem nota beri í hófi í kennslu. „Á Nóaborg er t.d. skjátími hvers barns aldrei meira en um þrjátíu mínútur á viku að jafnaði.“

Svava segir mikilvægt að upplýsingatæknin sé nýtt til að efla börn á ýmsa vegu. „Það er mikilvægt að beina sjónum að atbeina og valdeflingu barna, að tæknin nýtist þeim við að tjá skoðanir sínar og reynslu og auki möguleika þeirra til að verða virkir þátttakendur í samfélagi sem einkennist af tækninotkun.“