Skip to main content

Lakari en nágrannar okkar í betrun fanga

Ágústa Dúa Oddsdóttir, BA frá Uppeldis- og menntunarfræðideild

Vettvangsferð Ágústu Dúu Oddsdóttur á Litla-Hraun á fyrsta ári hennar í uppeldisog menntunarfræði varð kveikjan að BAlokaverkefni hennar en þar skoðaði hún nám og meðferðarstarfsemi í íslenskum fangelsum sem lið í betrunarstefnu fangelsisyfirvalda. „Ég skoðaði líka stöðu mála í Noregi, Danmörku og Svíþjóð til þess að fá betri sýn á hvar Ísland stendur hvað þetta varðar,“ segir Ágústa Dúa.

Í samstarfi við leiðbeinanda sinn, Sigrúnu Júlíusdóttur, þróaði Ágústa Dúa hugmyndina að lokaverkefninu en það fólst meðal annars í viðtölum við starfsmenn inni á Litla-Hrauni, stærsta fangelsi landsins, um stöðu náms og meðferðarstarfsemi þar. „Ein helsta ástæða þess að ég valdi þetta tiltekna viðfangsefni, burtséð frá því að mér þykir það einfaldlega áhugavert og þarft, er sú að ég tel almenning oft og tíðum ekki átta sig á mikilvægi þess að fangar eigi rétt á að mennta sig,“ undirstrikar Ágústa Dúa.

Ágústa Dúa Oddsdóttir

„Ég tel mikilvægt að fangelsisyfirvöld skoði það mikla og þróaða meðferðarstarf nágrannaþjóða okkar sem skilað hefur markvissum árangri.“

Ágústa Dúa Oddsdóttir

Niðurstöður hennar sýna meðal annars að nám og meðferðarstarfsemi í fangelsum eru óumdeilanlegir lykilþættir í átt að betrun fanga. „Ísland stendur hins vegar aftar en samanburðarþjóðirnar á Norðurlöndum í þessum málaflokkum og þá sér í lagi í meðferðarstarfsemi,“ segir hún.

Ágústa Dúa, sem nú leggur stund á meistaranám í sálfræði innan uppeldis- og menntunarfræða með áherslu á áhættuhegðun, forvarnir og lífssýn, segir samanburðinn við hin norrænu ríkin sýna okkur hverju er ábótavant á Íslandi. „Ég tel mikilvægt að fangelsisyfirvöld skoði það mikla og þróaða meðferðarstarf nágrannaþjóða okkar sem skilað hefur markvissum árangri. Einnig má benda á að rannsóknin bætir ýmsu við fyrirliggjandi þekkingu um viðfangsefnið auk þess sem hún hvetur til frekari rannsókna á sviðinu,“ segir hún um þýðingu rannsóknarinnar.

Leiðbeinandi: Sigrún Júlíusdóttir, prófessor emerita við Félagsráðgjafardeild.

Meðleiðbeinandi: Dögg Hilmarsdóttir, félagsráðgjafi hjá Fangelsismálastofnun.