Skip to main content
9. júní 2017

Háskóli Íslands á NAFSA

""

Dagana 28. maí til 2. júní sl. sóttu fulltrúar Háskóla Íslands árlega ráðstefnu NAFSA (Association of International Educators) sem í þetta sinn var haldin í Los Angeles í Kaliforníu. Ráðstefnan var haldin í 69. sinn og tóku nær tíu þúsund manns frá yfir hundrað löndum þátt.

Friðrika Harðardóttir, forstöðumaður Skrifstofu alþjóðasamskipta, flutti erindi á ráðstefnunni um samstarf háskóla á norðurslóðum. Í erindinu fjallaði hún m.a. um mikilvægi samvinnu í fámennum námsgreinum í fjársveltu umhverfi háskóla.

Háskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík voru með kynningarbás á sameiginlegu svæði Norðurlanda eins og undanfarin ár. Fulltrúar Háskóla Íslands voru Friðrika Harðardóttir, Aníta Hannesdóttir og Karitas Kvaran frá Skrifstofu alþjóðasamskipta og Guðrún Birgisdóttir frá Hugvísindasviði.

Á ráðstefnunni gefst þátttakendum kostur á að funda með fulltrúum samstarfsskóla, kanna möguleika á frekara samstarfi við áhugaverða skóla, sitja spennandi fyrirlestra um alþjóðlega menntun og efla persónuleg tengsl. 

Á næsta ári fer ráðstefnan fram í Philadelphíu í Pennsylvaníu.

Friðrika Harðardóttir og Karitas Kvaran ásamt fulltrúum Minnesota-háskóla.
Friðrika Harðardóttir ásamt fulltrúum frá Korea University sem er nýr samstarfsskóli Háskólans.
Aníta Hannesdóttir ásamt fulltrúa frá Kyushu University.