Skip to main content
24. janúar 2017

Umbra á háskólatónleikum í kapellu Aðalbyggingar

""

Tónlistarhópurinn Umbra ríður á vaðið á fyrstu háskólatónleikum ársins 2017 en þeir bera yfirskriftina „Af raunum kvenna“ og fara fram í kapellu Aðalbyggingar Háskóla Íslands miðvikudaginn 25. janúar kl. 12.30. Hópurinn flytur verk Kristínar Þóru Haraldsdóttur sem byggt er á Blóðhófni, ljóðabók Gerðar Kristnýjar, ásamt eldri verkum í eigin útsetningum. 

Umbra var stofnuð haustið 2014 og hefur haldið tónleika víða í höfuðborginni. Hópinn skipa atvinnu­­konur í tónlist, þær Alexandra Kjeld, kontrabassi og söngur, Arngerður María Árnadóttir, orgel, söngur og keltnesk harpa, Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir, fiðla og söngur, Kristín Þóra Haraldsdóttir, lágfiðla og söngur og Lilja Dögg Gunnarsdóttir, söngur og slagverk.

Umbra leitast við að skapa sína sérstöku stemningu á tónleikum, ná til nýrra áhorfenda, kanna ný rými og vinna markvisst með þann hljóðheim sem hlýst af sam­setningu hljóðfæra og söngs. Lögð er áhersla á að leika á uppruna­hljóðfæri, hvort sem spunnið er á staðnum eða eldri verk leikin. 

Enginn aðgangseyrir er að tónleikunum og allir eru velkomnir.

Nánari dagskrá:

1. Kristínarkvæði - Úr þjóðlagasafni sr. Bjarna Þorsteinssonar - Útsetning er Umbru

2. Úr Blóðhófni - Kristín Þóra Haraldsdóttir / Gerður Kristný - Verkið var frumflutt á Lista­hátíð í Reykjavík í júní 2016 en hér verða fluttir þrír hlutar úr verkinu. Í Blóðhófni Gerðar Kristnýjar, byggðum á Skírnismálum, segir jötunmærin Gerður Gymis­dóttir sögu sína af því þegar Freyr sendi Skírni að sækja hana í Jötunheima. Blóðhófnir var hestur Skírnis.

3. Sagan af Ingu lífstuttu - Útsetning er Umbru

4. Móðir mín í kví, kví - Úr þjóðlagasafni sr. Bjarna Þorsteinssonar - Útsetning er Umbru

Hópurinn Umbra
Hópurinn Umbra