Skiptinám í Evrópu - kynningarfundir
Nemendum sem hyggjast sækja um skiptinám í Evrópu gefst kostur á að kynna sér umsóknarferlið á kynningarfundum sem Skrifstofa alþjóðasamskipta heldur á næstu þremur vikum. Mælst er til þess að nemendur hafi kynnt sér skiptinám vel, skoðað mögulega háskóla og horft á kynningarmyndband um skiptinám fyrir fundina.
Fyrsti fundurinn er á dagskrá þriðjudaginn 24. janúar kl. 12-13 í stofu 104 á Háskólatorgi.
Næstu fundir:
- 26. janúar kl. 15-16 í stofu HT-300
- 7. febrúar kl. 15-16 í stofu HT-300
- 13. febrúar kl. 12-13 í stofu HT-300
Háskóli Íslands er í samstarfi við yfir 400 háskóla víða um heim og árlega nýta sér fjölmargir að taka hluta af námi sínu erlendis og sækja sér þannig sérhæfingu í námi og dýrmæta reynslu. Skiptinámið er metið inn í námsferil við HÍ.
Kostir þess að fara í skiptinám:
- fjölbreyttara námsframboð
- skiptinámið er metið inn í námsferil við Háskóla Íslands
- tækifæri til að kynnast menningu annarra landa
- einfaldara og ódýrara en að fara í nám á eigin vegum
- skólagjöld eru felld niður, m.a. við háskóla í Bandaríkjunum og Kanada
- aukin tungumálakunnátta
- dýrmæt reynsla sem nýtist í frekara námi eða á vinnumarkaði
Frestur til að skila inn umsókn um skiptinám í Evrópu skólaárið 2017-2018 er 1. mars 2017.
Sjá nánari upplýsingar um umsóknarferlið og námsmöguleika á http://www.hi.is/skiptinam