Berglind Eva Benediktsdóttir, doktorsnemi við Lyfjafræðideild
„Rannsóknir mínar snúast um að gera svokölluð kítósanefni leysanleg í vatni og nota þau til að hjálpa lyfjum sem venjulega eru gefin með stungu, til að komast eftir hefðbundnari leiðum inn í líkamann, t.d. í töflu- eða innöndunarformi,“ segir Berglind Eva Benediktsdóttir, doktorsnemi við Lyfjafræðideild. Berglind segir að margir séu háðir stungulyfjum, t.d. krabbameins- og sykursýkislyfjum. „Mörg þessara lyfja eru úr próteini sem örðugt er að koma inn í líkamann með öðrum leiðum en í sprautu. Slíku fylgir sýkingarhætta og erting á stungustað auk annarra óþæginda. Ekki þarf því að fjölyrða um kosti þess að ná jákvæðri niðurstöðu úr þessari rannsókn,“ segir Berglind.
Berglind Eva Benediktsdóttir
„Rannsóknir mínar snúast um að gera svokölluð kítósanefni leysanleg í vatni og nota þau til að hjálpa lyfjum sem venjulega eru gefin með stungu, til að komast eftir hefðbundnari leiðum inn í líkamann, t.d. í töflu- eða innöndunarformi.“

Að sögn Berglindar er kítósan náttúruleg fjölsykra sem unnin er úr rækju- og humarskel. Efnið gæti því varla verið íslenskara. „Hægt er að nota kítósan til að drepa bakteríur og hjálpa ýmsum stórum lyfjum að komast í gegnum himnur. Kítósan hefur hins vegar þann megingalla að vera ekki leysanlegt við það sýrustig sem er víðast í líkamanum og það takmarkar notkun þess en til þess að lyf virki þurfa þau að leysast upp í líkamanum. Í doktorsverkefninu mínu, sem er samstarfsverkefni Lyfjafræðideildar og Lífvísindaseturs HÍ, er ég að breyta kítósani með efnafræðilegum hætti í efni sem eru leysanleg í vatni. Þau verða þannig fýsilegri til notkunar í mönnum.“
Berglind fullyrðir að kítósan sé sérstaklega áhugavert þar sem ekki verði til skaðleg efni fyrir líkamann þegar það brotnar niður. „Við búum jafnframt svo vel að hafa greiðan aðgang að þessu hráefni, sem er unnið úr íslenskum sjávarafurðum. Því hafa þessar rannsóknir sérstakt gildi fyrir Íslendinga. Það er mikill kostur að til sé nóg af efni til að vinna með ef farið verður út í framleiðslu í stórum stíl fyrir frekari prófanir.“
Berglind hlaut fyrir nokkru viðurkenningu úr Verðlaunasjóði Bergþóru og Þorsteins Scheving Thorsteinssonar lyfsala en sjóðurinn veitir doktorsnemum í lyfjafræði við HÍ viðurkenningu fyrir framúrskarandi rannsóknir í lyfjafræði.
Berglind lauk doktorsprófi frá Háskóla Íslands haustið 2012.
Leiðbeinendur: Már Másson, prófessor við Lyfjafræðideild, og Ólafur Baldursson, sérfræðingur í lungnalækningum við Landspítalann.