Mary Frances Davidson, meistaranemi í umhverfis- og auðlindafræði
„Háskóli Íslands er í frábærri stöðu til að verða sjálfbærasti háskóli í heimi vegna hagnýtingar á hreinni orku,“ segir Mary Frances Davidson, meistaranemi við HÍ. Hún hefur vakið athygli fyrir vinnu tengda sjálfbærni á háskólasvæðinu. Mary Frances er nemi í umhverfis- og auðlindafræði, sem er þverfaglegt nám og býður upp á að nemendur sæki námskeið innan mismunandi deilda Háskólans.
„Ég kann mjög vel við þverfaglega námið. Það er nauðsynlegt að tengja saman mismunandi svið, eins og vísindi og stjórnmál, til að leysa flókna hluti eins og umhverfisvanda samtíðarinnar,“ segir Mary Frances.
Í meistararitgerð sinni reynir hún að greina vistfræðilegan skilning fólks í háskólasamfélaginu. „Þetta er gert í þeim tilgangi að henda reiður á hugsunarhætti Íslendinga og nýta hann við mótun lausna á umhverfisvandamálum,“ segir Mary Frances.
Mary Frances Davidson
„Háskóli Íslands er í frábærri stöðu til að verða sjálfbærasti háskóli í heimi vegna hagnýtingar á hreinni orku,“

Mary Frances lagði áður stund á umhverfisfræði við University of Washington í Seattle sem er framsækin borg á vesturströnd Bandaríkjanna. „Þegar ég kom til Íslands kom mér það mjög á óvart hversu mikið rusl var á götunum og hversu lítil áhersla var lögð á endurvinnslu. Ég held að margir útlendingar sem koma til landsins reikni með því að hér sé allt snyrtilegt og umhverfisvænt en verði fyrir léttu áfalli við komuna þegar þeir sjá hvernig hlutunum er háttað.“
Nú í haust setti Mary Frances saman nefnd nemenda, kennara og starfsfólks við Háskóla Íslands til að vinna að mótun á sjálfsbærnisstefnu Háskóla Íslands.
„Mér finnst frábært hvernig fólk við Háskóla Íslands er tilbúið að vinna saman að jákvæðum breytingum. Það er gott að það er strax brugðist við ef maður bendir á eitthvað rangt.“
Leiðbeinendur: Allyson Macdonald, prófessor í menntunarfræði við Menntavísindasvið, og Kristín Vala Ragnarsdóttir, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs