Skip to main content

Þáttaka Háskóla Íslands í EdX

Með þátttöku í EdX er markmið HÍ að gerast þátttakandi í þeirri hnattrænu þróun á sviði háskólamenntunar sem felst í auknu framboði á opnum netnámskeiðum. Þetta er leið til að miðla upplýsingum um styrkleika og sérstöðu HÍ í alþjóðlegu samhengi, en um leið tækifæri til að efla notkun upplýsingatækni í námi og kennslu í HÍ og miðla upplýsingum um nýja kennsluhætti og nýta til þess þá miklu reynslu og þekkingu sem felst í samstarfsneti EdX.

 EdX er einn helsti vettvangur þar sem almenningur sækir sér opin námskeið og er sérstaklega þekktur fyrir að bjóða upp á mjög góð og vel skipulögð námskeið. Einnig færist í aukana að háskólakennarar nýti opin netnámskeið annarra í tengslum við eigin námskeið. Námskeið HÍ bætast í þá flóru sem er nú þegar til.

Þátttaka Háskóla Íslands í EdX er ætlað að hvetja til umræðu um upplýsingatækni og kennsluhætti innan HÍ. Ör þróun upplýsingatækni hefur töluverð áhrif á nám og kennslu og það er mikilvægt að starfsfólk innan HÍ sé vel upplýst um stöðu og möguleika sem eru til staðar hverju sinni. EdX var stofnað af MIT og Harvard gagngert til að þróa nýja kennsluhætti í samræmi við tæknibreytingar. Með þátttöku okkar í EdX er HÍ partur af þessari þróun og getur verið leiðandi á þessu sviði á Íslandi.