![](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/namsleid_efsti/public/kbj/LAEK/1920_mg_0143.jpg?itok=HVueMdQa)
Læknavísindi
180 eða 240 einingar - Doktorspróf
Námið veitir þekkingu, hæfni og þjálfun í sjálfstæðum vinnubrögðum til að stunda vísindalegar rannsóknir og gegna hagnýtum störfum á innlendum sem og erlendum vettvangi.
![](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa/public/gudrunasta/HI_MYNDIR/1920_a9t6078.jpg?itok=CPXxuuBx)
Um námið
Doktorsnám í læknavísindum er 180 eininga þriggja ára rannsóknatengt fræðilegt og verklegt framhaldsnám.
Doktorsnemum er skylt að ljúka eða hafa lokið þremur námskeiðum. Þátttaka í árlegri ráðstefnu doktorsnema á Heilbrigðisvísindasviði er einnig skylda.
![](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa/public/kbj/LIF/1920_mg_9857.jpg?itok=ZgRVvG8A)
Markmið námsins
- Að veita nemendum þjálfun og innsýn í rannsóknaraðferðir í læknavísindum
- Að nemendur öðlist ítarlega þekkingu á sviði doktorsverkefnis síns
Í náminu felst undirbúningur og framkvæmd rannsókna, úrvinnsla og túlkun niðurstaðna, kynning og rökræður á eigin rannsóknum í samhengi við þekkingu á fræðasviðinu og birting í ritrýndum tímaritum.
Rannsóknatengt MS próf eða sambærilegt próf með góðum vitnisburði. Hafi nemandi sýnt góða námshæfni og reynslu af rannsóknastörfum með góðum vitnisburði leiðbeinanda, er heimilt að innrita hann í samþætt doktorsnám og kandídatsnám í læknisfræði að loknu þriðja námsári til kandídatsprófs í læknisfræði við læknadeild, þ.e. að loknu 180-240e námi til BS-prófs í læknisfræði.
Hafðu samband
Skrifstofa Læknadeildar
Læknagarði, 4. hæð
Vatnsmýrarvegi 16, 101 Reykjavík.
Sími: 525 4881 Fax: 525 4884
Netfang: medicine@hi.is
Opið alla virka daga kl. 9-15.
![](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa/public/gag4/1920_laeknagardur.jpg?itok=1YATseMZ)