Skip to main content
1. febrúar 2017

Vísindasamfélagið sameinast um stofnun Auðnu

""

Allir háskólar landsins ásamt opinberum rannsóknastofnunum og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu standa saman að Auðnu, undirbúningsfélagi sem sett hefur verið á laggirnar vegna stofnunar sameiginlegrar tækniyfirfærsluskrifstofu eða tækniveitu fyrir Ísland. Stefnt er að því að tækniveitan taki til starfa í byrjun árs 2018. 

Erlendar og innlendar úttektir á nýsköpunarumhverfinu hérlendis hafa leitt í ljós að skortur á tækniyfirfærslu (technology transfer) úr háskólum og rannsóknastofnunum er veikur hlekkur í nýsköpunarkeðjunni. Tækniveitunni er ætlað að vera brú á milli rannsókna og nýsköpunar þannig að verðmætur ávöxtur vísinda- og þekkingarstarfs skili sér til samfélagsins. Tækniveitan mun leggja faglegt mat á uppfinningar vísindamanna, sinna hugverkavernd og hugverkastjórnun og fylgja verkefnum eftir í hendur fjárfesta, frumkvöðla og atvinnulífsins innanlands sem utan. Sameiginleg tækniveita háskóla og rannsóknastofnana á Íslandi getur gegnt mikilvægu hlutverki í að virkja betur vísindastarf, styrkja nýsköpun, efla atvinnulíf og þar með samkeppnishæfni þjóðarinnar. 

Fulltrúar margra þeirra stofnana sem koma að undirbúningsfélaginu Auðnu hittust á stofnfundi þann 27. janúar þar sem meðfylgjandi mynd var tekin. Þarna má sjá fulltrúa Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík, Landspítala – háskólasjúkrahúss, Háskólans á Akureyri, Landbúnaðarháskóla Íslands, Háskólans á Bifröst, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Matís, Hafrannsóknastofnunar, Landgræðslu ríkisins, Vísindagarða HÍ og atvinnuvega-og nýsköpunarráðuneytisins. Á myndina vantar fulltrúa Listaháskóla Íslands og Háskólans á Hólum.  

Framkvæmdastjóri Auðnu er Einar Mäntylä.

Fulltrúar frá flestum þeim háskólum og rannsóknastofnunum sem standa að Auðnu, ásamt fulltrúa atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, hittust á stofnfundi á háskólasvæðínu á dögunum. MYND/Kristinn Ingvarsson
Fulltrúar frá flestum þeim háskólum og rannsóknastofnunum sem standa að Auðnu, ásamt fulltrúa atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, hittust á stofnfundi á háskólasvæðínu á dögunum. MYND/Kristinn Ingvarsson