Skip to main content
29. september 2017

Vegleg verðlaun í samkeppni um Hagnýtingarverðlaun HÍ

"""

Vinnur þú að spennandi rannsókn sem hefur mikla hagnýtingarmöguleika? Ertu með hugmynd að sprotafyrirtæki sem byggist á starfi þínu eða námi innan Háskóla Íslands? Þá gætir þú hreppt Hagnýtingarverðlaun Háskóla Íslands. Verðlaunin verða veitt í 20. sinn þann 16. nóvember nk. og verðlaunafé nemur samtals 3,5 milljónum króna.

Með samkeppninni vill Háskóli Íslands stuðla að hagnýtingu verkefna og nýsköpunar innan skólans en keppnin er opin öllum starfsmönnum og nemendum skólans og tengdra stofnana. Fólk af öllum fræðasviðum er hvatt til að senda inn hugmyndir sínar í keppnina enda má hagnýta margt fleira en tæknilegar lausnir í iðnaði. 

Peningaverðlaun eru veitt fyrir þrjú efstu sætin í keppninni. Tvær milljónir króna koma í hlut verkefnisins sem verður í fyrsta sæti, verkefnið í öðru sæti fær eina milljón króna og 500 þúsund krónur eru veittar fyrir verkefnið sem hafnar í þriðja sæti. 

Frestur til að skila inn tillögum í samkeppnina rennur út 25. október nk.

Sérstök dómnefnd metur hugmyndir sem berast í keppnina en við valið skoðar hún m.a.
 
i) Leiðir við hagnýtingu og hversu fljótt er unnt að hagnýta uppfinningu
ii) Hvort hagnýting styðji við stefnu og starfsemi Háskóla Íslands
iii) Rannsóknavinnu að baki verkefni/hugmynd
iv) Nýnæmi og frumleika
v) Ávinning fyrir samfélagið
vi) Hvernig verðlaunafé mun nýtast við hagnýtingu verkefnis/hugmyndar
 
Á heimasíðu Hagnýtingarverðlauna Háskóla Íslands má nálgast frekari upplýsingar um samkeppnina, þar á meðal umsóknareyðublað, verklagsreglur og yfirlit yfir fyrri verðlaunahafa.

Samkeppnin um Hagnýtingarverðlaun Háskóla Íslands er samstarfsverkefni Háskólans, Árnason|Faktor og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.
 

nemendur að störfum