Skip to main content
4. febrúar 2015

Styrkir til framhaldsnema í landfræði og ferðamálafræði

Stofnaður hefur verið Styrktarsjóður námsbrautar í land- og ferðamálafræði sem hefur það hlutverk að styrkja meistara- og doktorsnema í landfræði og ferðamálafræði til þátttöku í ráðstefnum á fagsviði sínu.

Þess er vænst að styrkir sjóðsins verði til að efla verulega framhaldsnám í þessum greinum. Nemendur í framhaldsnámi fá jafnan mikla fræðilega hvatningu og hagnýta reynslu af því að kynna verkefni sín fyrir fræðaheiminum. Fagráðstefnur eru sá vettvangur þar sem nýjasta þekking er reifuð og rýnd. Einnig skapast oft mikilvæg tengsl milli fólks sem vinnur að svipuðum rannsóknarefnum víða um heim.

Auglýst hefur verið eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum í fyrsta sinn, til þátttöku á ráðstefnu á árinu 2015.

Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 2015.

Rétt til að sækja um styrk úr sjóðnum eiga allir nemendur sem skráðir eru í meistara- eða doktorsnám í landfræði eða ferðamálafræði við námsbrautina. Styrkurinn er veittur til greiðslu fargjalda og/eða ráðstefnugjalds vegna einnar ráðstefnu. Skilyrði er að umsækjandi kynni rannsóknaverkefni sitt á ráðstefnunni.

Heildarfjárhæð styrkja til úthlutunar á árinu er kr. 800.000. Hver styrkur getur numið allt að kr. 200.000.

Umsóknum skal skilað með tölvupósti til ritara sjóðsstjórnar, Eddu R.H. Waage (erw@hi.is).

Eftirfarandi atriði þurfa að koma fram í umsókn:
1. Nafn, kennitala, heimilisfang, símanúmer og virkt netfang
2. Upplýsingar um ráðstefnuna
3. Greinargerð um fyrirhugaða þátttöku umsækjanda
4.  Áætlun um fargjöld
5. Upplýsingar um ráðstefnugjald

Nánari upplýsingar veitir sjóðsstjórn, en hana skipa Katrín Anna Lund (kl@hi.is), Edda Ruth Hlín Waage (erw@hi.is) og Karl Benediktsson (kben@hi.is).
 

Hinum nýja sjóði er ætlað að styrkja meistara- og doktorsnema í landfræði og ferðamálafræði til þátttöku í ráðstefnum á fagsviði sínu.
Hinum nýja sjóði er ætlað að styrkja meistara- og doktorsnema í landfræði og ferðamálafræði til þátttöku í ráðstefnum á fagsviði sínu.