Starfsþróun og starfsánægja kennara til umræðu á ráðstefnu
Menntavísindasvið Háskóla Íslands, í samstarfi við mennta- og menningarmálaráðuneytið og Kennarasamband Íslands, boðar til ráðstefnu um starfsþróun kennara fimmtudaginn 22. febrúar kl. 13-16 í húsnæði Háskóla Íslands við Stakkahlíð.
Markmið ráðstefnunnar er að efna til samtals meðal þeirra sem koma að starfsþróun kennara, skólastjórnenda og annarra fagstétta í skólum en öflug starfsþróun þessara stétta er talin lykilatriði til að stuðla að framförum í menntakerfinu.
Á dagskrá verður erindi um samstarfsráð um starfsþróun kennara, kennarar og skólastjórnandi fjalla um starfsþróunarverkefni í þeirra skólum og Kari Smith, yfirmaður NAFOL og prófessor við Norska tækniháskólann í Þrándheimi, heldur fyrirlestur undir yfirskriftinni „Stöðugt nám alla starfsævina”.
Í pallborðsumræðum sem fram fara að loknum fyrirlestri verður starfsþróun rædd út frá ýmsum sjónarhornum. Þar er ætlunin að leiða saman ýmsa aðila til að ræða hlutverk samstarfsráðs og háskóla í starfsþróun, væntingar kennara og skólastjórnenda, drifkraft, helstu hindranir, aðstæður og stuðning.
Setning ráðstefnunnar er í höndum Jóns Atla Benediktssonar, rektors Háskóla Íslands, og Aðalheiður Steingrímsdóttir, varaformaður Kennarasambands Íslands, mun slíta henni. Ráðstefnustjóri er Anna Kristín Sigurðardóttir, dósent við Háskóla Íslands.
Ráðstefnan verður send út á netinu.
Um ráðstefnuna
Haustið 2016 skipaði mennta- og menningarmálaráðherra samstarfsráð um starfsþróun kennara sem í eru fulltrúar mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Sambands Íslenskra sveitarfélaga, Háskóla Íslands, Háskólans á Akureyri, Listaháskóla Íslands, Kennarasambands Íslands og Skólameistarafélags Íslands. Verkefni samstarfsráðsins er að útfæra tillögur fagráðs um símenntun og starfsþróun kennara sem afhentar voru mennta- og menningarmálaráðherra í mars 2016.