Stærsta menntaráðstefna á Norðurlöndum haldin á Íslandi
Dagana 1.–3. júní sækja tæplega 900 manns menntaráðstefnuna NERA 2022 á Íslandi. Menntavísindasvið Háskóla Íslands heldur ráðstefnuna í samstarfi við samtökin Nordic Educational Research Association en yfirskrift ráðstefnunnar í ár er Menntun og þátttaka á óvissutímum.
Á ráðstefnunni verður fjallað um rannsóknir um uppeldi og kennslumál en yfir 700 fræðmenn í menntavísindum halda erindi um stöðu menntunar á óvissutímum og í kjölfar heimsfaraldurs. Flestir ráðstefnugestir koma frá háskólum á Norðurlöndum en einnig annars staðar úr heimunum, svo sem frá England, Hollandi, Japan og Kína.
Aðalfyrirlesarar ráðstefnunnar eru þrír, þau:
- Unn-Doris K. Bæck, prófessor við Arctic University í Tromsø í Noregi, sem flytur erindið Education, togetherness and robust community in precarious times.
- Dennis Francis, prófessor við University of Stellenbosch í Suður-Afríku, sem flytur erindið Precarious bodies, space & education.
- Guy Standing, prófessor við University of London flytur erindið Recovering the Soul of Education.
NERA eru samtök rannsakenda á sviði menntamála á Norðurlöndum. Samtökin var stofnuð árið 1972 og fagna því 50 ára afmæli í ár. Ár hvert stendur NERA fyrir ráðstefnu á Norðurlöndum og í ár var komið að því að halda ráðstefnuna á Íslandi. Ráðstefnan fer fram í húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, í Stakkahlíð og í Tækniskólanum.