Samstarf um menntun á sviði vinnutengdrar heilsu

Háskóli Íslands undirritaði nýverið samstarfssamning við NIVA – Norrænu stofnunina um framhaldsmenntun á sviði vinnutengdrar heilsu og Vinnueftirlitið um þróun fræðslu á því sviði.
NIVA, sem býður upp á menntun í öllum norrænu löndunum, hefur starfað í nánu samstarfi við rannsóknarstofnanir og háskóla á Norðurlöndunum. Í tengslum við það stendur stofnunin fyrir viðburðum af ýmsu tagi, meðal annars vönduðum vinnustofum, námsstefnum og síðast en ekki síst námskeiðum þar sem gæði og ný þekking eru í fyrirrúmi. Þessi námskeið hafa verið metin til háskólaeininga. NIVA er með fast aðsetur í Finnlandi en vinnustofurnar og námskeiðin eru haldin víða á Norðurlöndunum, meðal annars hér á landi.
Rektor Háskóla Íslands, Jón Atli Benediktsson, undirritaði samninginn ásamt Birgittu Forsström, forstjóra NIVA, og Kristni Tómassyni, yfirlækni hjá Vinnueftirlitinu. Viðstaddar undirritunina voru þær Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, aðstoðarrektor vísinda, sem situr fyrir hönd Háskóla Íslands í ráðgefandi nefnd á vegum NIVA, og Þórunn Sveinsdóttir, fulltrúi Íslands í stjórn NIVA.
