Róbert Jack varði doktorsritgerð í heimspeki

Róbert Jack hefur varið doktorsritgerð sína í heimspeki við Sagnfræði- og heimspekideild, Becoming as Good as Possible: A Study of a Platonic Conception. Vörnin fór fram í Hátíðasal Háskóla Íslands föstudaginn 24. apríl síðastliðinn.
Andmælendur voru dr. Jakob Fink og dr. Pauliina Remes. Dr. Svavar Hrafn Svavarsson,, prófessor í heimspeki við Sagnfræði- og heimspekideild, var aðalleiðbeinandi í doktorsverkefninu en í doktorsnefnd sátu auk hans dr. Eyjólfur Kjalar Emilsson, prófessor við Háskólann í Osló, og dr. Christoph Horn, prófessor við Háskólann í Bonn.
Ágrip af rannsókn
Doktorsritgerðin fjallar um hvað það þýðir að verða betri manneskja í heimspeki Platons. Höfundur notast við sálfræðilega hugmynd um þroskastig frá 20. öld og rökstyður að sambærilega hugmynd sé að finna hjá Platoni. Einnig er því haldið fram að samræðuaðferðin sem beitt er í samræðum Platons miði að því að gera viðmælendurna betri. Þau rit Platons sem mest er unnið með varðandi þroskastigin eru Ríkið og Samdrykkjan. Þegar fjallað er um samræðuaðferðina er vitnað til fleiri samræðna eins og Prótagórasar, Gorgíasar, Þeætetosar, Sófistans, Alkibíadesar I og Fædrosar.
Um doktorsefnið
Róbert Jack er fæddur 8. ágúst 1971. Hann lauk B.A.-gráðu í heimspeki frá Háskóla Íslands árið 1995 og M.A.-gráðu í heimspeki frá sama skóla árið 2005.

