Skip to main content
8. júlí 2016

Opnað fyrir styrkumsóknir í Rannsóknasjóð Ingibjargar

Ákveðið hefur verið að veita styrki úr Rannsóknasjóði Ingibjargar R. Magnúsdóttur í október 2016. Um er að ræða styrki til doktorsnema í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum við Háskóla Íslands. Heildarupphæð styrkja er 700.000 krónur.

Markmið sjóðsins er að efla rannsóknir í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum og verða veittir styrkir til rannsóknaverkefna hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra í doktorsnámi sem falla að markmiðum sjóðsins.

Umsóknarfrestur um styrki úr sjóðnum er til 1. september 2016.

Val á styrkhöfum er í höndum stjórnarmanna. Stjórn sjóðsins skipa Jóhanna Bernharðsdóttir, formaður stjórnarinnar og stjórnarformaður Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði, Stefán Bragi Bjarnason lögfræðingur, fulltrúi Ingibjargar R. Magnúsdóttur, Ólöf Ásta Ólafsdóttir, fulltrúi Ljósmæðrafélags Íslands, Auðna Ágústsdóttir, fulltrúi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, og Dagmar Huld Matthíasdóttir, fulltrúi velferðarráðuneytisins.

Rafrænt umsóknareyðublað má nálgast hér. 

Þetta er í sjöunda sinn sem styrkur verður veittur úr Rannsóknasjóði Ingibjargar R. Magnúsdóttur en sjóðurinn var stofnaður sem einn af Styrktarsjóðum Háskóla Íslands í júlí árið 2007. Styrkhafar árið 2015 voru Margrét Gísladóttir og Jóna Ingibjörg Jónsdóttir.

Ingibjörg R. Magnúsdóttir, stofnandi sjóðsins, er fyrrverandi námsbrautarstjóri í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands og fyrrverandi skrifstofustjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Hún hefur verið einn ötulasti talsmaður þróunar hjúkrunarmenntunar á Íslandi og var ein þeirra sem stóð að stofnun námsbrautar í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands árið 1973.

Hægt er að styrkja sjóðinn með ýmsu móti, t.d. með gjöfum í tilefni árgangaafmæla eða útskriftar. Einnig er hægt að senda minningarkort og tækifæriskort frá sjóðnum. Fjárhæðir má leggja inn á eftirfarandi bankareikning hjá Íslandsbanka: 0513-26-004057. Kennitala Styrktarsjóðanna HÍ er 571292-3199.

Frekari upplýsingar um styrki og styrkveitingar veitir Jóhanna Bernharðsdóttir, formaður stjórnar, johannab@hi.is, sími 525-5280. 

Ljósmæður að störfum.
Ljósmæður að störfum.