Opinn fundur um niðurstöður PISA 2015
Menntavísindasvið Háskóla Íslands og Menntamálastofnun boða til kynningarfundar um niðurstöður PISA-rannsóknarinnar 2015 miðvikudaginn 7. desember nk. kl. 14.30-17.30 í Bratta í húsnæði Háskóla Íslands við Stakkahlíð. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkur fundur er haldinn hér á landi en þar munu sérfræðingar greina ítarlega frá niðurstöðum og kynna tillögur að mögulegum úrbótum.
Menntamálastofnun sá um framkvæmd PISA-rannsóknarinnar sem lögð var fyrir alla nemendur í 10. bekk vorið 2015. Samstarf hefur verið milli Menntavísindasviðs og Menntamálastofnunar um greiningu gagnanna og túlkun niðurstaðanna en fyrr á árinu undirrituðu forsvarsmenn stofnana viljayfirlýsingu um samstarf.
PISA-rannsóknin er lögð fyrir í 72 löndum um heim allan. Könnuð er frammistaða nemenda í stærðfræðilæsi, lesskilningi og náttúrulæsi og að þessu sinni var sérstök áhersla lögð á náttúrulæsi. Könnunin er framkvæmd á þriggja ára fresti og gefur vísbendingar um breytingar á frammistöðu nemenda yfir tíma ásamt því að meta stöðu þeirra við lok skyldunáms. Þetta er í sjötta sinn sem niðurstöður rannsóknarinnar eru birtar.
Fundurinn er öllum opinn.