Jóla- og nýárskveðja frá Menntavísindasviði
Árið 2022 var viðburðaríkt og skipulögðu starfsfólk og nemendur sviðsins fjölda viðburða sem höfðu fengið að bíða í heimsfaraldri. Metfjöldi var brautskráður frá Menntavísindasviði í júní, eða um 670 kandítatar. NERA, stærsta norræna menntaráðstefna var á haldin í júní sl. og sóttu hátt í eitt þúsund manns ráðstefnuna. Rýnt var í mikilvægi menntarannsókna á opnunarhátíð Menntakviku í október með þátttöku mennta- og barnamálaráðherra og háskóla- og nýsköpunarráðherra. Fjölbreyttar menntarannsóknir voru kynntar sem snerta flest svið samfélagsins, s.s. jafnrétti, uppeldi og menntun, nám og kennslu, skóla- og frístundastarf, íþróttir, heilsu og velferð ungra sem aldna.
Eitt af því sem einkenndi starfsemi sviðsins á árinu er öflugt samstarf við samfélagið. Menntafléttan hefur vaxið og dafnað á árinu og eflir námssamfélög kennara og fagfólks um allt land; Mixtúra, tækni- og sköpunarsmiðja Skóla- og frístundasviðs flutti í Stakkahlíð og Nýsköpunarstofa menntunar hélt innreið sína í Vísindagarða HÍ.
Framundan á nýju ári 2023 eru spennandi verkefni, ekki síst áframhaldandi undirbúningur að flutningi sviðsins í Sögu sem áætlaður er árið 2024. Stefnt er að því að í Sögu muni hjarta menntunar, íþrótta og velferðar slá áfram í takti við þarfir og væntingar samfélagsins alls.
Ég færi starfsfólki sviðsins og samstarfsaðilum innilegar þakkir fyrir samstarfið á árinu. Megi árið 2023 vera gæfuríkt.
Hátíðarkveðjur,
Kolbrún Þ. Pálsdóttir
Forseti Menntavísindasviðs
Fréttir af Menntavísindasviði 2022
Vandræðaálfur veldur usla
Bókasafn Menntavísindasviðs fékk óvæntan gest í desember þegar vandræðaálfurinn hreiðraði þar um sig, breytti jólatré í eldfjall, sólaði sig í jógahorninu, gerði origami, og breytti einkunn á lokaprófi sínu. Fregnir af álfinum má lesa á fésbókarsíðu bókasafnsins.
Flutningur Menntavísindasviðs í Sögu
Mikill undirbúningur undir flutning Menntavísindasviðs í Sögu hefur átt sér stað á árinu. Málþing var haldið um skipulag og hönnun námsumhverfa háskóla í Stakkahlíð. Misserisþing ársins voru bæði helguð flutningi í Sögu og hefur töluverð forvinna því átt sér stað. Sjá fréttir:
Framtíðar náms- og kennsluumhverfi háskóla
Flutningur Menntavísindasviðs í nýja Sögu
NERA haldin á Íslandi
Stærsta menntaráðstefna á Norðurlöndum haldin á Íslandi dagana 1.- 3. júní. Menntavísindasvið hélt ráðstefnuna í samstarfi við samtökin Nordic Educational Research Association en yfirskrift ráðstefnunnar í ár var: Menntun og þátttaka á óvissutímum.
Sjá frétt:
Stærsta menntaráðstefna á Norðurlöndum NERA
Sókn á sviði nýsköpunar menntunar
Ný starfseining Nýsköpun og menntasamfélag var sett á laggirnar sem styður við nýsköpun á sviði menntunar, kennsluþróun og starfsþróun. Sjá heimasíðu:
www.nymennt.hi.is
Þá hóf Nýsköpunarstofa menntunar starfsemi sína. Sjá frétt:
Nýsköpunarstofa menntunar stofnuð
Leikskólinn í deiglunni
Viljayfirlýsing var undirrituð um þróun og innleiðingu fagháskólanáms í leikskólakennarafræðum á landsvísu. Fjallað var um rannsóknir á sviði leikskólakennarafræða og stöðu leikskólabarna. Metfjöldi leikskólakennara brautskráðist í júní á þessu ári.
Sjá fréttir:
Viljayfirlýsing undirrituð um fagháskólanám í leikskólakennarafræðum
Reynsla er metin og viðurkennd
Mörg börn telja sig vera lengi í leikskólanum
Fleiri vilja í leikskólakennaranám
Menntakvika
Á Menntakviku voru að vanda kynntar rannsóknir um það sem efst er á baugi í menntavísindum.
Sjá fréttir og umfjallanir:
www.menntakvika.hi.is
Hvaða máli skipta menntavísindi?
Forseti MVS ræðir Menntakviku á Morgunvakt RÚV
Jafnréttisrannsóknir á Menntavísindasviði
Út kom rannsókn um hvernig nýútskrifuðum konum í kennslu í vegni fyrstu tvö ár í starfi.
Hvernig vegnar nýútskrifuðum konum í kennslu í starfi
Lýsingar mæðra á börnum sínum í opinberum viðtölum 1970-1979 samanborið við 2010-2019 var, kynnt á árinu.
Úr sjálfstæðum og jafnréttissinnuðum í fullkomin og frábær börn
Fræðakonur á Menntavísindasviði gáfu út bókin Aðstæðubundið sjálfræði sem fjallar um líf og aðstæður fólks með þroskahömlun.
Aðstæðubundið sjálfræði - ný bók komin út
Rannsókn sem beinist að feðrum sem beitt hafa ofbeldi í nánum samböndum er í gangi.
Rannsakar ofbeldi feðra í nánum samböndum
Orðræðan um hinsegin fólk rannsökuð í sögulegu ljósi.
Frá kynferðislegum útlögum til fyrirmyndarborgara
Unnið var að viðamikilli rannsókn um fötlun á tíma faraldurs.
Fatlað fólk ekki haft með í viðbragðsáætlunum í hamförum
Nemendur héldu sýninguna #Égvilvinna
Nemendur Menntavísindasviðs í starfstengdu diplómanámi fyrir fólk með þroskahömlun buðu til útskriftarráðstefnu 10. maí og sýning nemenda #Égvilvinna opnaði á Háskólatorgi í október. Sjá frétt:
Sýningin #Égvilvinna opnuð á Háskólatorgi
Samstarf um nám, læsi og þroska
Menntafléttan ferðaðist um landið og studdi við námssamfélög kennara og fagfólks í skóla- og frístundastarfi. Sjá frétt:
Menntafléttan fjölbreytt og áhugaverð
Læsi er lykill að menntun ráðstefnan var haldin í byrjun mars og læsisneisti var kveiktur í Vestmannaeyjum með verkefninu Kveikjum neistann. Sjá frétt:
Austur-Vestur sköpunar- og tæknismiðjur er spennandi verkefni í Ingunnarskóla, Vesturbæjarskóla og Selásskóla þar skólastarf er þróað í samvinnu við fræðafólk af Menntavísindasviði. Sjá frétt:
Austur-Vestur sköpunar og tæknismiðjur
Íslenskubrú sett á laggirnir í samvinnu við Hugvísindasvið.
Sjá frétt:
Íslenskubrú yfir í kennslu- og uppeldisstörf
Fjölbreyttar rannsóknir á sviði heilsueflingar, forvarna og líðan barna og ungmenna
Nærst var og notið í sjónvarpsþáttum á RÚV sem Anna Sigríður Ólafsdóttir, prófessor við MVS, stýrði og fjallað um bragðlaukaþjálfun.
Sjá fréttir:
Anna Sigríður kennir fólki að nærast og njóta á RÚV
Leikgleðin getur dregið úr matvendni
Fyrsta heildarskýrsla Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar var kynnt á haustdögum. Sjá frétt:
Neteinelti algengara meðal 6.bekkinga en 10.bekkinga
Fjallað var um svefnrannsóknir og heilsuhegðun ungra Íslendinga. Sjá frétt:
Íslensk ungmenni sofna seint og sofa stutt
Málþing og sérrit til heiðurs Jóni Torfa Jónassyni
Sjá frétt: Fjölmennt á málþingi til heiðurs Jóni Torfa
Hlekkur á sérrit:
Sérrit - Framtíð og tilgangur menntunar
Fjölmiðlarannsókn
Menntavísindastofnun framkvæmdi fjölmiðlarannsókn á árinu sem snéri m.a. að því hve mikið börn og ungmenni nota samfélagsmiðla. Sjá frétt:
Hversu skaðleg er notkun samfélagsmiðla?
Átta nýir lektorar ráðnir
30 ára afmæli Tímarits um uppeldi og menntun
30 ára afmæli Tímarits um uppeldi og menntun
Mixtúra fékk aðsetur í Stakkahlíð
Samstarf Menntavísindasviðs við Reykjavíkurborg efldist til muna þegar Mixtúra, tækni- og sköpunarsmiðja, flutti inn í Stakkahlíð með teymi sérfræðinga.
Mixtúra fær aðsetur á Menntavísindasviði
Átta útskrifuðust með doktorspróf á árinu 2022
Sjá frétt:
Háskóli Íslands fagnar 86 brautskráðum doktorum á undangengnu ári
Fleiri fréttir má sjá á fésbókarsíðu Menntavísindasviðs