Skip to main content
11. júní 2025

Fjölmenni á heiðursmálþingi í minningu Páls Skúlasonar

Fjölmenni á heiðursmálþingi í minningu Páls Skúlasonar - á vefsíðu Háskóla Íslands

Stór hópur samstarfsfólks, nemenda, vina, afkomenda og ættingja Páls Skúlasonar, prófessors og fyrrverandi rektors Háskóla Íslands, kom saman á málþingi sem haldið var til minningar um hann miðvikudaginn 4. júní en þann dag hefði Páll orðið áttræður. 

Alls var boðið upp á þrettán fræðileg erindi sem snertu viðfangefni Páls, bæði sem prófessors í heimspeki og rektors Háskóla Íslands á árunum 1997-2005, en auk þess minntust ættingar og vinir Páls í styttri ávörpum. Á meðal helstu viðfangsefna Páls innan heimspekinnar voru stjórnmál og lýðræði, siðfræði náttúrunnar, hlutverk háskóla, siðfræði og gagnrýnin hugsun, verufræði, merking og tilgangur og sem rektor lagði hann mikla áherslu á að efla akademískt frelsi og gagnrýna hugsun innan háskólasamfélagsins. 

Páll hafði mikil áhrif á samferðafólk sitt, háskólastarf og heimspeki eins og vel kom fram í þeim erindum sem flutt voru á málþinginu. „Pabbi var alltaf að, alltaf á einhverri ævintýralegri vegferð, fyrir honum var það að vera til að vera að gera eitthvað. Það gat verið að lesa, hugsa og skrifa – en það gat líka verið að hlusta á tónlist, spjalla við góða vini og samstarfsfólk, fara í göngutúr eða keyra á fjöll. Enda var hann ótrúlega afkastamikill, sem heimspekingur, sem rektor, sem afi, pabbi og sem vinur. Hann var félagslyndur og vinamargur og það er afskaplega dýrmætt að sjá ykkur svo mörg hér í dag,“ sagði Kolbrún Þ. Pálsdóttir, dóttir Páls og forseti Menntavísindasviðs HÍ, þegar hún minntist föður sínar við setningu málþingsins í Hátíðasal.

Fjölmenni sótti málþingi sem fór fram bæði í Hátíðasal og stofu 220. MYND/Kristinn Ingvarsson

Með mörg járn í eldinum þegar hann lést

Eftir Pál liggur mikill fjöldi bóka, greina og annarra verka og í erindi sínu benti Kolbrún enn fremur á að faðir hennar hefði haft mörg járn í eldinum þegar hann lést árið 2015. „Vert að geta þess að hann lauk við handbók um skyldur sjúklinga skömmu áður en hann lést,“ sagði Kolbrún. Hægt að eignast rafrænar útgáfur af sumum síðustu bókum Páls á vef Háskólaútgáfunnar en yfirlit yfir verk hans má finna á minningarsíðu um hann.

Jón Atli Benediktsson, rektor HÍ, ávarpaði gesti í lok þingsins og minntist Páls. Hann sagði meðal annars að Páll hefði haft sterka og skýra sýn á hlutverk háskóla og hefði í rektorstíð sinni eflt stöðu skólans í samfélaginu og ekki síst sem rannsóknarháskóla. Á meðal þess sem hann lagði grunninn að með sinni framtíðarsýn voru Vísindagarðar Háskólans og bygging Háskólatorgs sem vettvangs fyrir fræðafólk, starfsfólk og nemendur skólans. Þá stofnaði hann til Háskóla unga fólksins sem enn er árlegur þáttur í starfi skólans.

Að málþinginu stóð fjölskylda Páls í samstarfi við og með stuðningi Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands og Heimspekistofnunar skólans. Í undirbúningshópi voru Henry Alexander Henrysson, Björn Þorsteinsson, Skúli Skúlason, Róbert H. Haraldsson auk Kolbrúnar Þ. Pálsdóttur.

Myndir Kristins Ingvarssonar frá málþinginu má sjá hér að neðan.

Undirbúningsnefnd málþingsins ásamt ekkju Páls. Frá vinstri, Björn Þorsteinsson, Kolbrún Þ. Pálsdóttir, Henry Alexander Henrysson, Auður Birgisdóttir, Skúli Skúlason og Róbert H. Haraldsson.
Fjölmenni sótti málþingi sem fór fram bæði í Hátíðasal og Stofu 220.
Kolbrún Þ. Pálsdóttir ávarpar gesti á málþinginu.
Bækur Páls
Fjölmenni sótti málþingið sem fór fram bæði í Hátíðasal og Stofu 220. Hér er Ólafur Páll Jónsson prófessor að flytja erindi í stofu 220.
Gestir á málþinginu
Skúli Skúlason, bróðir Páls, minntist bróður síns.
Jón Torfi Jónasson, prófessor og fyrrverandi samsarfsmaður Páls, í pontu í Hátíðasal.
Gunnar Hersveinn heimspekingur minntist Páls.
Gestir á málþinginu
Magnús Skúlason, bróðir Páls, minntist bróður síns.
Fjöldi ættingja og venslafólks Páls var á þinginu.
Eyja Margrét Brynjarsdóttir prófessor ávarpar gesti að loknu málþinginu.
+17

Undirbúningsnefnd málþingsins ásamt ekkju Páls. Frá vinstri, Björn Þorsteinsson, Kolbrún Þ. Pálsdóttir, Henry Alexander Henrysson, Auður Birgisdóttir, Skúli Skúlason og Róbert H. Haraldsson.