30. desember 2015
Fjölbreytt efni Ritraðar Guðfræðistofnunar

Út er komin Ritröð Guðfræðistofnunar sem gefin er út á netinu og er öllum opin. Að þessu sinni innheldur Ritröðin greinar um svo fjölbreytt efni sem Jane Austen, biblíuþýðingar, kvikmyndina The Shawshank Redemption, Jón Steingrímsson og Skaftárelda, íslenska embættisguðfræði og umhverfisguðfræði Elizabeth A. Johnson.

