Skip to main content
6. janúar 2025

Embætti rektors Háskóla Íslands auglýst laust til umsóknar

Embætti rektors Háskóla Íslands auglýst laust til umsóknar - á vefsíðu Háskóla Íslands

Háskólaráð Háskóla Íslands hefur auglýst embætti rektors skólans laust til umsóknar og er umsóknarfrestur til og með 31. janúar 2025

Rektor Háskóla Íslands er forseti háskólaráðs, yfirmaður stjórnsýslu háskólans og æðsti fulltrúi hans og talsmaður gagnvart mönnum og stofnunum innan háskólans og utan hans. Hann stýrir starfsemi háskólans og hefur frumkvæði að því að háskólaráð marki sér heildarstefnu í málefnum háskólans. Hann ber ábyrgð á framkvæmd stefnu háskólans og tengslum háskólans við innlenda og erlenda samstarfsaðila. Rektor ber ábyrgð á og hefur eftirlit með allri starfsemi háskólans, þ.m.t. ráðningar- og fjármálum einstakra fræðasviða og stofnana. Hann er einnig ábyrgður fyrir gerð starfs- og rekstraráætlana og að þær séu samþykktar af háskólaráði. 

Fram kemur í auglýsingu fyrir embættið að embættisgengir séu þeir einir sem hafa prófessorshæfi, leiðtogahæfileika og skýra og metnaðarfulla framtíðarsýn fyrir háskólann, ríka samskiptahæfni og víðtæka reynslu af stjórnun og stefnumótun. Háskólaráð ákvarðar hvaða umsækjendur uppfylla skilyrði um embættisgengi. 

Kosning fer fram innan Háskóla Íslands á milli þeirra sem bjóða sig fram til embættis rektors. Það kemur svo í hlut menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra að skipa háskólarektor til fimm ára samkvæmt tilnefningu háskólaráðs að loknum kosningunum.

Jón Atli Benediktsson hefur gegnt embætti rektors Háskóla Íslands frá árinu 2015 en nýr rektor tekur við 1. júlí 2025.

Frekari upplýsingar um embætti rektors Háskóla Íslands eru á Starfatorgi. Þar er jafnframt sótt um embættið.
 

aðalbygging HÍ