Skip to main content
16. nóvember 2024

DODICI- sigraði í tækni- og hönnunarkeppni First LEGO League

DODICI- sigraði í tækni- og hönnunarkeppni First LEGO League - á vefsíðu Háskóla Íslands

Liðið DODICI- úr Vopnafjarðarskóla sigraði í hinni árlegu og alþjóðlegu tækni- og hönnunarkeppni First LEGO League sem fram fór í Háskólabíói í dag. Um leið vann liðið sér inn þátttökurétt í norrænum keppnum FIRST LEGO League sem fara fram síðar í vetur.

Háskóli Íslands heldur utan um keppnina hér á landi en markmið hennar er að efla áhuga ungs fólks á vísindum og tækni og styrkja færni þeirra í lausnamiðaðri og skapandi hugsun. Keppnin reynir á nýsköpunarhugsun, samskiptahæfni og samstarf liða og hefur jafnframt það hlutverk að efla sjálfstraust þátttakenda. Keppnin er haldin með stuðningi Verkfræðingafélags Íslands. 

Tæplega 200 grunnskólanemar í 20 liðum tóku þátt í keppninni að þessu sinni en þar á meðal voru nokkur lið sem voru að taka þátt í fyrsta sinn. Liðin áttu að leysa fjölbreytt verkefni, m.a. að forrita LEGO-vélmenni til að leysa þrautir á keppnisbraut og vinna nýsköpunarverkefni sem tengist þema keppninnar, sem í ár var Neðansjávar (e. SUBMERGED). Liðin þurftu einnig að kynna hvernig þau hefðu hannað og forritað vélmennið auk þess sem horft var til liðsheildar og samstarfs innan hvers hóps við mat á frammistöðu í keppninni. Í ár voru jafningjaverðlaun enn fremur veitt í fyrsta sinn í keppninni en viðurkenninguna hlaut það lið sem að mati annarra liða þótti hafa sýnt hvað mesta vinnusemi og liðsanda, háttvísi og fagmennsku. 

Þegar stig höfðu verið talin saman kom í ljós að liðið DODICI- úr Vopnafjarðarskóla var sigurvegari í heildarkeppninni. Í verðlaun fékk liðið forláta bikar úr LEGO-kubbum og 200 þúsund krónur í verðlaunafé. Jafnframt býðst liðinu að taka þátt í norrænni keppni FIRST LEGO League síðar í vetur, annaðhvort í Noregi, þar sem norsk og sænsk lið keppa, eða í Danmörku, þar sem dönsk og færeysk lið etja kappi.

Verðlaun í einstökum flokkum fengu eftirtalin lið

Besta hönnun og forritun vélmennis 

1. sæti: Smokkfiskarnir úr Garðaskóla í Garðabæ
2. sæti: DODICI- úr Vopnafjarðarskóla 
3. sæti: Kolkrakkar úr Rimaskóla í Reykjavík

Vélmennakappleikur

1. sæti: DODICI- úr Vopnafjarðarskóla
2. sæti: Smokkfiskarnir úr Garðaskóla í Garðabæ
3. sæti: Gemsarnir úr Grunnskóla Drangsness og Hólmavíkur

Besta liðsheildin

1. sæti: 701 úr Brúarásskóla á Fljótsdalshéraði
2. sæti: Kraftboltar úr Kerhólsskóla í Borg í Grímsnes- og Grafningshreppi
3. sæti: Team Starfish úr Borgarhólsskóla á Húsavík

Besta nýsköpunarverkefnið

1. sæti: Humrarnir úr Grunnskóla Hornafjarðar
2. sæti: Acid Rayne úr Landakotskóla í Reykjavík
3. sæti: El Grilló úr Seyðisfjarðarskóla

Jafningjaverðlaun
HáaLEGOskóli úr Háaleitissskóla í Reykjavík

Á næsta ári mun tækni- og hönnunarkeppni First LEGO League fagna 20 ára afmæli á Íslandi og verður því fagnað með veglegum hætti.

Sigurvegararnir í liðinu DODICI- úr Vopnafjarðarskóla
Verðlaunahafar í vélmennakappleik
Humrarnir úr Grunnskóla Hornafjarðar hlutu verðlaun fyrir besta nýsköpunarverkefnið.
Smokkfiskarnir úr Garðaskóla í Garðabæ fengu verðlaun fyrir besta hönnun og forritun vélmennis.
Liðið HáaLEGOskóli úr Háaleitissskóla hlaut jafningarverðlaun sem veitt voru í fyrsta sinn í ár.
Liðið 701 úr Brúaráskóla hlaut verðlaun fyrir bestu liðsheildina