Skip to main content
8. nóvember 2025

Berserkir sigruðu í Stóru LEGO-keppni grunnskólanna

Berserkir sigruðu í Stóru LEGO-keppni grunnskólanna - á vefsíðu Háskóla Íslands

Liðið Berserkir úr Grunnskóla Hornafjarðar sigraði í Stóru LEGO-keppni grunnskólanna, FIRST® LEGO® League Ísland sem fram fór í Háskólabíói í dag. Um leið vann liðið sér inn þátttökurétt á mótum FIRST® LEGO® League erlendis.

Keppnin fagnar 20 ára afmæli á Íslandi í ár og varð því fagnað með stórglæsilegum viðburði og fjölbreyttri dagskrá fyrir alla fjölskylduna hluta dagsins. Markmið LEGO-keppninnar er að efla áhuga og hæfni nemenda á sviði vísinda og tækni, hvetja til nýsköpunar og styrkja lífsleikni eins og sjálfstraust, samvinnu og samskiptahæfni.

Hátt í 200 þátttakendur í 19 liðum úr grunnskólum víðs vegar af landinu tóku þátt í keppninni að þessu sinni. Þau spreyttu sig á fjölbreyttum verkefnum, þar á meðal að forrita LEGO-vélmenni til að leysa þrautir á keppnisbraut og vinna nýsköpunarverkefni sem tengist þema keppninnar, sem í ár var Uppgröftur (e. Unearthed). Enn fremur áttu liðin að kynna hönnun vélmenna sinna fyrir dómnefnd og við mat á frammistöðu var einnig horft til liðsheildar.

Þegar stigagjöf í einstökum þátttum keppninnar hafði verið tekin saman kom í ljós að liðið Berserkir úr Grunnskóla Hornafjarðar varð hlutskarpast. Í viðurkenningarskyni fékk liðið forláta bikar úr LEGO-kubbum og 300 þúsund krónur í verðlaunafé. Jafnframt býðst liðinu að taka þátt í alþjóðlegum mótum FIRST® LEGO® League en keppnin nær til meira en 600.000 barna og ungmenna í 110 löndum um heim allan.

Verðlaun í einstökum flokkum fengu eftirtalin lið

Besta hönnun og forritun vélmennis

1. sæti: Robody Builders úr Garðaskóla

2. sæti: Fiona´s minors úr Landakotsskóla

3. sæti: Double3 Baka úr Austurbæjarskóla

Vélmennakappleikur

1. sæti: Berserkir og Fortíðar Kubbar úr Grunnskóla Hornafjarðar (tvö lið jöfn)

2. sæti: Fat Cats úr Holtaskóla

3. sæti: The Minors úr Rimaskóla

Besta liðsheildin

1. sæti: Berserkir úr Grunnskóla Hornafjarðar

2. sæti: Kraftboltar úr Kerhólsskóla

3. sæti: Skóflurnar úr Vogaskóla

Besta nýsköpunarverkefnið

1. sæti: The Minors úr Rimaskóla

2. sæti: Jóhannes´ Minions úr Reykjahlíðarskóla

3. sæti: Fortíðar Kubbar úr Grunnskóla Hornafjarðar

Jafningjaverðlaun

The gr8 eight úr Vopnafjarðarskóla

Háskóli Íslands hefur haldið utan um keppnina frá upphafi með stuðningi ýmissa fyrirtækja. Líkt og undanfarin ár er Verkfræðingafélag Íslands helsti bakhjarl keppninnar og á stóran þátt í að gera þessa spennandi keppni að veruleika.

Liðið Berserkir úr Grunnskóla Hornafjarðar sigraði í Stóru LEGO-keppni grunnskólanna, FIRST® LEGO® League Ísland sem fram fór í Háskólabíói í dag.
Allir þátttakendur
The Minors úr Rimaskóla fengu verðlaun fyrir besta nýsköpunarverkefnið
Liðin  Berserkir og Fortíðar Kubbar úr Grunnskóla Hornafjarðar urðu jöfn í vélmennakappleiknum
Robody Builders úr Garðaskóla fengu 1. verðlaun fyrir bestu hönnun og forritun vélmennis. MYND/Sigurjón Ragnar
Berserkir úr Grunnskóla Hornafjarðar fengu einnig 1. verðlaun fyrir bestu liðsheildina.
The gr8 eight úr Vopnafjarðarskóla hlutu Jafniningaverðlaun keppninnar