Vigdísarverðlaunin 2022
![Vigdísarverðlaunin 2022 - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_KRI_haskolatorg_181122_001.jpg?itok=uRBZbk3e)
Aðalbygging
Hátíðasalur
Vigdísarverðlaunin 2022 verða veitt í Hátíðasal Aðalbyggingar Háskóla Íslands miðvikudaginn 5. október kl. 15.
Verðlaunin eru árlega veitt einstaklingi, félagasamtökum, stofnunum eða öðrum sem brotið hafa blað með störfum sínum í þágu tungumála, menningarheima og þýðingastarfs. Verðlaunin voru sett á laggirnar til að heiðra og vekja athygli á lofsverðu framlagi Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrum forseta Íslands, til menningar og tungumála. Að verðlaununum standa Háskóli Íslands, menningar- og viðskiptaráðuneytið fyrir hönd íslenskra stjórnvalda og Vigdísarstofnun – alþjóðleg miðstöð tungumála og menningar.
Öll velkomin meðan húsrúm leyfir. Viðburðurinn fer fram á ensku og verður jafnframt streymt.
Vigdísarverðlaunin 2022 verða veitt í Hátíðasal Aðalbyggingar Háskóla Íslands miðvikudaginn 5. október kl. 15.
![Vigdísarverðlaunin 2022](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/9p96a.jpg?itok=tQCiO1mZ)