Víðerni í víðu samhengi: Kortlagning, verndun og upplifun
Norræna húsið
Hvað eru víðerni? Af hverju skipta þau máli? Hversu mikilvæg eru íslensk víðerni í alþjóðlegu samhengi? Hver eru gildi víðerna fyrir Íslendinga?
Stofnun Sæmundar Fróða um sjálfbæra þróun við Háskóla Íslands stendur fyrir málþingi um víðerni í samvinnu við Vatnajökulsþjóðgarð. Málþingið verður haldið í Norræna húsinu 25. mars frá kl. 10-16 en verður einnig í beinu streymi. Málþinginu er ætlað að vera umræðugrundvöllur um víðerni út frá ólíkum sjónarmiðum.
Fyrir liggur að kortleggja þurfi víðerni Íslands í ljósi breytinga á náttúruverndarlögum. Í framhaldi þarf að taka afstöðu til þess hvort ástæða sé til að vernda sérstaklega tiltekin svæði á Íslandi sem óbyggð víðerni. Í því samhengi má t.d. nefna ítarlega endurskoðun á stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs og hvaða gildi óbyggð víðerni eigi að hafa í Rammaáætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða. Á málþinginu munu bæði erlendir og innlendir fyrirlesarar taka til máls sem og fulltrúar stofnanna og hagaðila sem láta sig málefnið varða. Áhersla verður lögð á að skoða mismunandi skilgreiningar og flokkanir víðerna, kortlagningu þeirra, verndarsjónarmið, upplifun og sjálfbæra nýtingu. Auk erinda verða pallborðsumræður. Nánari dagskrá verður kynnt á næstu dögum. Endilega takið daginn frá!