Verðbólgusaga Íslands á 20. öld
![Verðbólgusaga Íslands á 20. öld - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/rad-2017-05-13-arn-40.jpg?itok=78FVPBkl)
Árnagarður
Stofa 311
Helgi Skúli Kjartansson, prófessor emeritus í sagnfræði við Háskóla Íslands, flytur fyrirlestur í Málstofu í félags- og hagsögu sem hann nefnir „Verðbólgusaga Íslands á 20. öld.“
Fyrirlesturinn fer fram í stofu 311 í Árnagarði, þriðjudaginn 29. nóvember kl. 16:00-17:00.
Málshefjandi kemur að efninu sem „yfirlitshöfundur“ um Íslandssögu 20. aldar, með litla rannsóknarreynslu í hagsögu aldarinnar og enn minni tök á peningahagfræði. Hann hyggst reifa vandamál fremur en leysa þau og vonast til að umræður málstofugesta skýri fleira en hann er einfær um.
Áformuð umræðuatriði:
- Mælikvarðar á verðbólgu, sambærilegar tölur og ósambærilegar.
- Nútíminn (frá þjóðarsátt). Af hverju á verðlag helst að hækka?
- „Verðbólguþjóðfélagið“ frá hernámi til þjóðarsáttar. Reynt að afstýra „óðaverðbólgu“ en verðbólgan líka virkjuð.
- „Verðsveiflutíminn frá aldamótum til seinni heimsstyrjaldar. Verðhjöðnun skaðlegri en verðbólga?
Hægt er að nálgast dagskrá Málstofu í félags- og hagsögu á haustmisseri vef Sagnfræðistofnunar. Málstofan er umræðuvettvangur fyrir hvers konar efni í félags- og hagsögu á hvaða tímabili sem er. Hún er með óformlegu sniði þar sem fólki gefst tækifæri til að kynna rannsóknir sínar, verk í vinnslu jafnt sem útgefin verk, prófa nýjar hugmyndir og kenningar eða taka fyrri rannsóknir til gagnrýnnar skoðunar. Á eftir framsögum er gefinn góður tími til fyrirspurna og almennra umræðna. Málstofan er á vegum kennara í sagnfræði og viðskiptafræði í Háskóla Íslands og umsjón hafa sagnfræðiprófessorarnir Erla Hulda Halldórsdóttir, Guðmundur Jónsson og Ragnheiður Kristjánsdóttir og Sveinn Agnarsson, prófessor í viðskiptafræði.
Helgi Skúli Kjartansson, prófessor emeritus í sagnfræði við Háskóla Íslands.
![Verðbólgusaga Íslands á 20. öld](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/3wkqw.jpg?itok=9fq_EBOY)