Úthlutun styrkja úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta HÍ
![Úthlutun styrkja úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta HÍ - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_KRI_haskolinn_200220_001.jpg?itok=8K7t41hA)
Aðalbygging
Hátíðasalur
Styrkjum verður úthlutað úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands í Hátíðasal skólans mánudaginn 29. ágúst kl. 16.30.
Þau sem hljóta styrki að þessu sinni eiga það sameiginlegt að hafa náð framúrskarandi árangri á stúdentsprófi og innritað sig til náms við skólann í haust. Við mat á styrkþegum er þó ekki einungis horft til árangurs þeirra á stúdentsprófi heldur einnig annarra þátta eins og virkni í félagsstörfum í framhaldsskóla og árangurs á öðrum sviðum, til dæmis í listum eða íþróttum. Þá er stjórn sjóðsins heimilt að styrkja nýnema sem sýnt hafa fram á sérstakar framfarir í námi eða góðan námsárangur þrátt fyrir erfiðar aðstæður.
Fyrstu styrkirnir voru veittir úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands árið 2008 og er nú úthlutað úr honum í 15. sinn.
Styrkirnir úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands eru veittir með stuðningi Aldarafmælissjóðs skólans og Happdrættis Háskóla Íslands.
Styrkjum verður úthlutað úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands í Hátíðasal skólans mánudaginn 29. ágúst kl. 16.30.
![Úthlutun styrkja úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta HÍ](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/4d6vq.jpg?itok=FtIp1N4e)