Skip to main content

UK/Iceland Education Forum

UK/Iceland Education Forum - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
8. mars 2022 12:00 til 17:00
Hvar 
Nánar 
Aðgangur ókeypis

Árið 2021 undirrituðu íslensk og bresk stjórnvöld samkomulag um samstarf á sviði menntunar, rannsókna og nýsköpunar og geimvísinda. Eitt af áhersluatriðum samningsins er að styrkja samstarf háskólastofnana í báðum löndum og tryggja aðgang íslenskra náms- og fræðimanna að breskum menntastofnunum.

Þann 8. mars verður fyrsti árlegi samráðsvettvangurinn haldinn í tengslum við samkomulagið (UK/Iceland Education Forum). Markmiðið er að kynna háskólastofnanir í báðum löndum, hvetja til samstarfs og kanna möguleika á nýjum samstarfssamningum, t.d. í nemendaskiptum eða rannsóknasamstarfi. Einnig geta þau sem hafa áhuga á námi í Bretlandi kynnt sér skólagjöld sem og námsstyrki sem í boði eru fyrir íslenska nemendur. Þátttakendur geta spjallað beint við háskólastofnanir og fengið gagnlegar upplýsingar um nám í Bretlandi.

Þessi viðburður verður rafrænn vegna COVID. Dagskrá og skráningu á viðburðinn má finna á vefsíðu fundarins. Skráning á viðburðinn er gjaldfrjáls.

UK/Iceland Education Forum

UK/Iceland Education Forum