Tvö erindi um samskipti Kína og Afríku
![Tvö erindi um samskipti Kína og Afríku - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/900africa_china_flag.jpg?itok=qponv7vz)
Veröld - Hús Vigdísar
Stofa 007
Námsleið kínverskra fræða á Hugvísindasviði kynnir:
Tvö erindi um samskipti Kína og Afríku
Sérfræðingar við Mið- og Austur-Asíustofnun Kraká-háskóla (Uniwersytet Jagielloński) í Póllandi flytja tvö erindi um samskipti Kína og Afríku:
- Dr. Agata Karbowska: China's soft power in Kenya
- Kaja Kałużyńska: Media image of Chinese investments in Africa: Case study of Zambia and Angola
Erindin fara fram á ensku og boðið er upp á umræður í kjölfarið.
Tími: Þriðjudaginn 22. nóvember 2022, kl. 15:00-17:00
Staður: Veröld, stofa 007.
Um fyrirlesara:
Dr. Agata Karbowska er lektor við Mið- og Austur-Asíustofnun Kraká-háskóla þar sem hún lauk einnig doktorsprófi í stjórnmálafræði. Hún kennir um þrælahald og nýlendustefnu í Afríku sem og félagssögu álfunnar. Hún hefur kennt við Háskólann í Ístanbúl (Şehir) og er höfundur ýmissa bóka og greina um súfisma, pólitísks íslam sem og félagslegar, pólitískar, trúarlegar og menningarlegar áskoranir í Mið-Austurlöndum og Norður Afríku. Um þessar stundir einblínir hún í rannsóknum sínum á Afríku, einkum pólitískt íslam í Afríku sunnan Sahara og samskipti Kína og Afríku.
Kaja Kałużyńska er doktorsnemi við félagsvísindasvið Kraká-háskóla. Síðan 2012 hefur hún rannsakað kínversk áhrif í Afríku, einkum í Angóla, Sambíu og svokallað „mjúkt vald“ á því svæði. Einkum einblínir hún á menningu Tujia-minnihlutans og þær þjóðarímyndir sem birtast á rituðu máli.
Sérfræðingar við Mið- og Austur-Asíustofnun Kraká-háskóla í Póllandi flytja tvö erindi um samskipti Kína og Afríku.
![Tvö erindi um samskipti Kína og Afríku](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/637xp.jpg?itok=AhRPmDLM)